Um er að ræða mjög snyrtilegt 90,5 fm. parhús ásamt 25,0 fm. bílgeymslu., samtals 115,5 fm. Húsið er byggt úr timbri árið 2019 og er klætt að utan með litaðri báru og bandsöguðu timbri í bland. Litað járn er einnig á þaki. Þakið er valmaþak. Að innan er íbúðin tvö svefnherbergi, stofa, eldhús, baðherbergi, þvottaherbergi, hol og forstofa. Harðparket er á öllum gólfum nema forstofu, baði og þvottaherbergi en þar eru flísar. Svört og hvít innrétting með eyju og góðum tækjum er í eldhúsinu. Á baðinu er dökkbrún innrétting, baðker og upphengt wc. Tveir veggir á baði eru flísalagðir. Þvottaherbergið er innaf baðinu og er rennihurð þar á milli en þar er hvít innrétting, walk in sturta og handklæðaofn. Útgengt er á sólpall við sunnanvert húsið úr stofu. Innangengt er í bílskúrinn úr holinu. Stór skápur er í holinu. Fataskápar eru í báðum herbergjunum. Innfelld lýsing er í öllum rýmum. Sólpallur er á baklóð. Baklóðin er að öðru leyti þökulögð. Möl er í innkeyrslu og til hliðar við húsið. Bílskúrinn er með álflekahurð. Skúrinn er fullmálaður og klæddur.
Byggt 2019
115.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2508376
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðar í húsi
1
Hæðar í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Frárennslislagnir
Upphaflegar
Gluggar / Gler
Upphaflegt
Þak
Upphaflegt.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Sólpallur
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Þúfulækur 13, Selfossi. Í einkasölu.
Um er að ræða mjög snyrtilegt 90,5 fm. parhús ásamt 25,0 fm. bílgeymslu., samtals 115,5 fm. Húsið er byggt úr timbri árið 2019 og er klætt að utan með litaðri báru og bandsöguðu timbri í bland. Litað járn er einnig á þaki. Þakið er valmaþak. Að innan er íbúðin tvö svefnherbergi, stofa, eldhús, baðherbergi, þvottaherbergi, hol og forstofa. Harðparket er á öllum gólfum nema forstofu, baði og þvottaherbergi en þar eru flísar. Svört og hvít innrétting með eyju og góðum tækjum er í eldhúsinu. Á baðinu er dökkbrún innrétting, baðker og upphengt wc. Tveir veggir á baði eru flísalagðir. Þvottaherbergið er innaf baðinu og er rennihurð þar á milli en þar er hvít innrétting, walk in sturta og handklæðaofn. Útgengt er á sólpall við sunnanvert húsið úr stofu. Innangengt er í bílskúrinn úr holinu. Stór skápur er í holinu. Fataskápar eru í báðum herbergjunum. Innfelld lýsing er í öllum rýmum. Sólpallur er á baklóð. Baklóðin er að öðru leyti þökulögð. Möl er í innkeyrslu og til hliðar við húsið. Bílskúrinn er með álflekahurð. Skúrinn er fullmálaður og klæddur.
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.