Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu: Selvogsbraut 37, Þorlákshöfn. Fallegt 104m2 miðjuraðhús með 3 svefnherbergjum, ásamt 38m2 bílskúr með grónum garði. Húsið er einstaklega vel staðsett, í rólegum botnlanga, en skammt frá allri þjónustu, s.s verslun, apóteki og banka. Einnig er örstutt í skóla, leikskóla og íþróttasvæði !
SELD MEÐ FYRIRVARA.
Eignin skiptist svo:
* Flísalögð forstofa.
* 3 góð svefnherbergi og eru góðir skápar í hjónaherbergi.
* Mjög rúmgóða stofu með harðparketi á gólfi.
* Utangengt er úr stofunni á góðan sólpall.
* Fallegt eldhús með viðar-innréttingu, flísum á gólfi og milli skápanna.
* Rúmgott baðherbergi með viðar-innréttingu með flísum á gólfi og veggjum.
* Gott þvottahús með flísum á gólfi. Utangengt er úr þvottahúsinu.
* Fullfrágenginn bílskúr.
* Geymsla í enda bílskúrsins.
** Garðurinn er gróinn og fallegur og einstaklega skjólgóður með stórum sólpall. Bílaplan er hellulagt.
Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar:
Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna:
Apótekarann.
Bakaríið Café Sól (facebook: café sól)
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Kr.-verslun með yfir 2.000 helstu vöruliði á Krónuverði
Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn)
Caffe Bristól
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
815 | 104 | 50,8 | ||
815 | 104 | 50,8 | ||
805 | 181.2 | 54 | ||
801 | 181.2 | 54 | ||
861 | 154.4 | 55 |