*** EIGNIN ER SELD, MEÐ FYRIRVARA ***
Domusnova fasteignasala og Aðalsteinn Bjarnason lgf. kynna í sölu vel skipulagða og nokkuð endurnýjaða 4 herbergja íbúð á 2. hæð (efsta hæð) með svalir til suðurs í litlu fjölbýlishúsi við Efstahjalla 5 í Kópavogi. Birt stærð eignar samkvæmt Þjóðskrá eru 94,4 fm og þar af 7,3 fm sérgeymsla í kjallara. Eignin skiptist í forstofuhol, stofu, eldhús, baðherbergi (þvottavél/þurrkari inná baði) og þrjú svefnherbergi. Sérgeymsla er inn af sameignargangi í kjallara ásamt sameiginlegu þvotta- og þurrkherbergi. Íbúðin hefur verið töluvert endurnýjuð á síðastliðnu ári (2021), en búið er að skipta um öll gólfefni auk þess sem eldhús og baðherbergi hafa verið endurnýjuð.
EIGNIN ER VEL STAÐSETT Í GRÓNU HVERFI ÞAR SEM STUTT ER Í ALLA VERSLUN OG ÞJÓNUSTU ÁSAMT LEIK-, GRUNN OG FRAMHALDSSKÓLA Í NÁGRENNI. STUTT Í ÝMSAR GÖNGU OG HJÓLALEIÐIR UM FOSSVOG OG ELLIÐAÁRDAL.*** SMELLIÐ HÉR TIL AÐ BÓKA SKOÐUN ***Nánari lýsing og skipting eignar:Anddyri: Gengið er inn í lítið anddyri með nýlegum tvöföldum fataskáp og flísum á gólfi.
Hol: Innaf anddyri er rúmgott hol sem tengir saman vistaverur íbúðarinnar.
Eldhús: Nýlega endurnýjuð elhúsinnrétting ásamt vaski, ofn og helluplötu (2021) og gert ráð fyrir uppþvottavél.
Stofa: Björt með stórum gluggum og útgengt á svalir til suðurs.
Hjónaherbergi: Rúmgott með stórum nýlegum fataskáp (2021).
Herbergi I: Með tvöföldum fataskáp og harðparket á gólfi.
Herbergi II: Með fataskáp og harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Nýlega endurnýjað baðherbergi með sturtu, salerni, vaski, hvítri innréttingu og spegli. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísalagt í hólf og gólf. (2021)
Geymsla: Rúmgóð sérgeymsla með glugga inn af sameignargangi í kjallara.
Gólfefni: Endurnýjuð árið 2021. Flæðandi harðparket er á öllum rýmum íbúðar nema forstofu og baðherbergi, þar eru flísar.
** SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA FRÍTT VERÐMAT Á ÞÍNA FASTEIGN **Nánari upplýsingar veita:Margrét Rós Einarsdóttir
aðstoðarmaður fasteignasala / s.8565858 / margret@domusnova.is
Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s.773 3532 / adalsteinn@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.