Borg fasteignasala kynnir til sölu fallega 3ja herbergja íbúð á jarðhæð ásamt stæði í lokaðri bílageymslu við Lágaleiti í Reykjavík. Íbúðin skiptist í forstofu hol, stofu og eldhús í alrými, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Þvottahús er innan íbúðar. Sérgeymsla er í kjallara og stæði í lokaðri bílageymslu. Seljendur skoða skipti á 4ja herbergja íbúð á jarðhæð.
Nánari lýsing: Komið er inn á hol með fataskápum og harðparketi. Stofa og eldhús mynda alrými, björt með gólfssíðum gluggum og harðparketi. Úr alrými er gengið út á svalir. Eldhús er með hvítlakkaðri innréttingu og eyju. Hjónaherbergi er rúmgott með harðparketi og fataskápum. Barnaherbergi er með harðparket
i. Baðherbergi er flísalagt með innréttingu og walk in sturtu. Þvottahús er innan íbúðar með flísum og innréttingu.
Sérgeymsla er í sameign og stæði í lokaðri bílageymslu með aðstöðu fyrir hleðslustöð.
Nánari upplýsingar veitir: Brandur Gunnarsson löggiltur fasteignasali-löggiltur leigumiðlari í síma 897-1401 brandur@fastborg.is Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati (einstaklingar), 1,6% (lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði