Fasteignaleitin
Skráð 7. júní 2026

Jöfursbás 3b Íb. 404

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
94.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
Verð
91.900.000 kr.
Fermetraverð
971.459 kr./m2
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
25410165
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

NÝJAR ÍBÚÐIR VIÐ HAFIÐ - Sýni samdægurs. Bókaðu skoðun í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is. Afhending ágúst 2026.

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir einstaklega vandaðar og vel hannaðar íbúðir við Jöfursbás 3b, Reykjavík - íbúð 0404 er 3ja herbergja íbúð 94,6 fm. á fjórðu hæð í lokuðu stigahúsi, þar af geymsla 8,9 fm. í kjallara.  Íbúðin er  með tveimur svefnherbergjum. 25,7 m2  Þaksvalir til suðurs út frá stofu . Íbúðin er með aukinni lofthæð yfir 280cm. Sjá skilalýsingu hér.


Heimasíða verkefnisins má finna hér

Innanhúss hönnuður hefur komið að hönnun allra íbúða en í þeim má finna innréttingar sem eru sérsmíðaðar hjá VOKE-III, blöndunartæki eru frá Grohe og hreinlætistæki frá Duravit.  Quartz steinn frá Technistone er á eldhúsum og böðum.  Flísar á votrýmum og vandað parket á aðalflötum íbúðar er frá Harðviðarval og eldhústæki frá AEG.


* aukin lofthæð 
* sérsmíðaðar innréttingar sem ná upp í loft.
* vönduð gólfefni
* gólfhiti
* gólfsíðir gluggar
* innbyggð uppþvottavél með ísskáp með frysti
* quartz steinn á borðum og undirlímdir vaskar
* snjóbræðslukerfi í göngustígum með fallegri næturlýsingu 
* spennandi umhverfisskipulag í nýju hverfi


Nánari lýsing íbúðar
Forstofa  með innbyggðum fataskáp 
Eldhús opið inn í stofu með fallegri innréttingu sem nær til lofts.  Innrétting er sérsmíðuð frá VOKE með quartz stein á borðplötu.
Stofa er lítil með góðum gluggum og útgengt á þaksvalir til suðurs
Baðherbergi flísalagt bæði gólf og hluti veggja.  Vönduð innrétting með quartz borðplötu. 
Þvottahús með innréttingu.
Svefnherbergin tvö með vönduðum fataskáp í öðru þeirra sem ná til lofts
Geymsla á sér geymslugangi í kjallara hússins

Hjóla- og vagnageymsla í sameign
Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl
Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar


Allir innviðir í hverfinu sterkir þ.m.t. skólar, leikskólar, verslanir og hvers konar önnur þjónusta í næsta nágrenni.

Íbúðirnar í húsinu eru samtals 19 talsins, mjög fjölbreyttar 2-4 herbergja. Stærðir frá 54,4 fm-165,9  m2  

// VILDARKORT LINDAR // sem allir viðskiptavinir Lindar fá afhent við kaupsamning
Við vekjum sérstaka athygli á því að allir kaupendur hjá Lind fasteignasölu fá Vildarkort Lindar sem veitir 30% afslátt hjá samstarfsaðilum okkar, en þeir eru:
Parki (gólfefni), Z brautir og gluggatjöld, Húsgagnahöllin, Betra bak, Dorma, Flügger litir, S. Helgason steinsmiðja, Vídd og Húsasmiðjan.

Hverfið:
Við Eiðsvík í Gufunesi er að rísa spennandi íbúðabyggð í gömlu iðnaðarhverfi sem nú hýsir kvikmyndaver og fyrirtæki í skapandi greinum. Landslagið er einstakt, vogskornir klettar, strendur með svörtum og gylltum sandi, fuglalíf og útsýni yfir Geldinganes, Viðey, Esju og miðborgina. Engar götur skilja byggðina frá náttúrunni og einungis hjóla- og göngustígar liggja að hafi. 
 
Vatnastrætó, ylströnd, göngubrú út í Viðey og góðir göngu- og hjólastígar er meðal þess sem mun einkenna þetta skemmtilega hverfi. Það er einstakt að eiga kost á slíkri náttúruperlu í miðri höfuðborginni. Strönd þar sem hægt er að fara á í fargufu og sæþotuleiga.

Allar upplýsingar um eignina veitir
Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Lind fasteignasala ehf
www.fastlind.is

Myndir (15)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sjávarborg 1 C
Skoða eignina Sjávarborg 1 C
Sjávarborg 1 C
190 Vogar
130.4 m2
Raðhús
514
764 þ.kr./m2
99.600.000 kr.
Skoða eignina Sjávarborg 1 B
Skoða eignina Sjávarborg 1 B
Sjávarborg 1 B
190 Vogar
130.4 m2
Raðhús
514
686 þ.kr./m2
89.500.000 kr.
Skoða eignina Sjávarborg 1 A
Skoða eignina Sjávarborg 1 A
Sjávarborg 1 A
190 Vogar
130.4 m2
Raðhús
514
764 þ.kr./m2
99.600.000 kr.
Skoða eignina Silfursmári 2
Bílastæði
Skoða eignina Silfursmári 2
Silfursmári 2
201 Kópavogur
116 m2
Fjölbýlishús
312
Fasteignamat 98.500.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin