Margrét Rós lgf. og Fasteignasalan TORG kynna í sölu 3ja herbergja íbúð með sérinngangi á efri hæð við Kársnesbraut 93, 200 Kópavogi. Um er að ræða eign í tveggja hæða fjölbýlishúsi á skjólsælum og vinsælum stað í Vesturbæ Kópavogs með fallegu útsýni yfir Fossvoginn og Esjuna. Eignin skiptist í forstofu, hol, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og rúmgóða stofu. Sérgeymsla og sameiginlegt þvottahús eru í kjallara. Gróinn og skjólgóður garður er við húsið og leikvöllur í næsta nágrenni. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós Löggiltur fasteignasali, í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is ** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR **Birt stærð eignar skv. fasteignaskrá HMS er 77,1 m² þar af er íbúð skráð 71,8 m² og sérgeymsla í kjallara 5,3 m²Lýsing eignar:Gengið er inn um
sérinngang á suðurhlið hússins og komið inn í
anddyri/forstofu. Þaðan tekur við
hol/gangur sem tengir saman rými íbúðarinnar.
Stofa er björt og rúmgóð með stórum gluggum til suðurs.
Eldhús er með snyrtilegri innréttingu og borðkrók. Loftgluggi er í eldhúsi sem gefur aukna birtu inn í rýmið.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með parketi á gólfi og góðum gluggum sem gefa glæsilegt útsýni yfir Fossvoginn, Kársnesið og Esjuna. Fataskápur er í hjónaherbergi.
Baðherbergi er flísalagt með baðkari/sturtu, salerni og handlaug. Sameiginlegt
þvottahús og
sérgeymsla eru í kjallara hússins. Íbúðin er rúmgóð og vel skipulögð með mikla möguleika fyrir nýja eigendur.
FÁÐU FRÍTT VERÐMAT Á ÞÍNA EIGN HÉRNánari skipting og lýsing á eignarhluta: Anddyri/forstofa með físar á gólfi, fatahengi á vegg og millihurð.
Hol/gangur með harðparket á gólfi og tengir saman rými íbúðarinnar.
Stofa er opin við hol með harðparket á gólfi og stórum gluggum til vestur.
Eldhús er hálf opið við gang og stofu með L-laga innréttingu og lítlum borðkrók. Stæði er fyrir uppþvottavél í innréttingu. Harðparket á gólfi og loftgluggi sem gefur aukna birtu inn í rýmið.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með parketi á gólfi og góðum gluggum. Í hjónaherbergi er góður fataskápur.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með baðkari/sturtu, salerni og handlaug.
Þvottahús er sameiginlegt í kjallar og hver íbúð með sér tengi.
Sérgeymsla íbúðar (
5,3 m²) er einnig inna af sameignargangi í kjallara hússins.
Framkvæmdir að sögn seljanda og samkvæmt upplýsingum frá húsfélags:- Skipt um þakglugga í eldhúsi og stofuglugga (2015)
- Skólplangir endurnýjaðar frá húsi og út í aðalæð (2016)
- Ný klæðning (dúkur) sett á þak hússins. Flasningar á þakbrún endurnýjaðar sem og affallsrennur (2016)
- Gengið frá tengingum í þvottahúsi, hver og ein íbúð með sér tengil og setti nýjir tenglar fyrir þvottavélar (2024)
- Þvottahús málað og ný niðurföll sett í þvottahús og kyndirými (2024)
- Til stendur að lagfæra tröppur og gangstétt fyrir utan húsið
ERTU Í SÖLUHUGLEIÐINGUM? SMELLTU HÉRStaðsetning:Eignin er staðsett á afar góðum og skjólsælum stað í Vesturbæ Kópavogs þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Leikvöllur er við húsið og í göngufæri eru skólar, leikskólar, verslanir, þjónusta og Kópavogslaug. Fallegar göngu- og útivistarleiðir eru í næsta nágrenni og einstaklega fallegt útsýni yfir Fossvoginn og til Esjunnar.
Nánari upplýsingar veita:Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s.
856-5858 /
margret@fstorg.isAðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 773-3532 / adalsteinn@fstorg.is
KÍKTU Í HEIMSÓKN TIL MÍN Á FACEBOOK
VILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉRUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.