Baldur J, löggiltur fasteignasali - sími 450-0000 kynnir í einkasölu: Glæsilegt endaraðhús á tveim hæðum á góðum stað í Urriðaholti. Húsið afhendist eins og það stendur í dag. Húsið er einangrað að utan, klætt og fullbúið að utan, grófjöfnuð lóð, full einangrað. Inni: hlaðnir milliveggir, múrhúðað, hiti í gólfi, flotað og lakkað gólf, rafmagn ídregið að mestu.
ATH.Síðustu tvær myndirnar og úti myndirnar sína hvernig eignin er í dag. Aðrar myndir eru tölvuteiknaðar til að sýna hvernig eignin getur komið til með að líta út. Smelltu hér til að sækja kynningarbækling straxNánari lýsing neðri hæð - skv. teikningu:Anddyri: lokað anddyri með gestasalerni. Salerni er ófrágengið.
Stofa: Mjög rúmgóð 40 fermetra stofa með útgengi á sólpall.
Eldhús: Opið er á milli stofu og eldhúss. Skv. teikningu er innrétting hugsuð sem "L" með góðu vinnuplássi og eyju.
Mjög gott pláss fyrir borðstofuborð á milli eldhúss og stofu.
Bílskúr: 32 fermetra bílskúr skv. Þjóðskrá
Efri hæð:Hjónaherbergi: mjög rúmgott 17,8 fermetra herbergi með sér baðherbergi og 5,8 fermetra fataherbergi. Baðherbergið er ófrágengið.
Hol: 13,8 fermetra hol við svalir nýtist vel sem "sjónvarpsherbergi" eða fjölskylduherbergi með útgengi á svalir.
Svefnherbergi 2: 8,2 fermetra herbergi. skv. teikningu
Svefnherbergi 3: uþb. 12 fermetrar skv. teikningu
Svefnherbergi 4: 10,4 fermetrar skv. teikningu
Þvottahús: Tengi fyrir þvottavél og þurrkara
Baðherbergi: Sturta og vegghengt klósett. Salerni hefur verið sett upp ásamt skolvask.
Um er að ræða einstaklega góða eign sem er hægt að gera að sinni. Hverfið er fjölskylduvænt og stutt er í skóla og alla helstu þjónustu. Nánari upplýsingar:
Baldur Jezorski - löggiltur fasteignasali
Sími 450 0000 / baldur@fastgardur.is