RE/MAX kynnir virkilega fallega 4ja herbergja íbúð á annarri hæð með rúmgóðum suðursvölum og stæði í bílageymslu við Vallakór 1-3 í Kópavogi.
Eignin skiptist forstofu, þrjú rúmgóð svefnherbergi, stofu, borðstofu og eldhús í opnu rými, þvottarými og baðherbergi. Stæði í bílageymslu fylgir ásamt 7,3 fm. geymslu í kjallara. Stutt í helstu þjónustu m.a. leik- og grunnskóla, matvörubúð, apótek, íþróttasvæði og fallegar gönguleiðir að hinu vinsæla útvistarsvæði Guðmundarlundar.
Íbúðin er öll nýlega máluð, með nýjum sérsniðnum gardínum frá Álnabæ og auk þess hafa öll blöndunartæki verið yfirfarin af fagaðila.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir, Guðrún Þórhalla, löggiltur fasteignasali í síma 820-0490 eða á netfangið gudrun@remax.is.
Frekari upplýsingar um eignina:Gengið inní íbúð af svölum. Rúmgóð forstofa með góðum fataskáp.
Þrjú góð svefnherbergi eru í eigninni með harðparket á gólfi og rúmgóðum fataskápum.
Baðherbergi með sturtuklefa og baðkari. Handklæðaofn og upphengdri innréttingu. Flísar á gólfi og veggjum. Nýlega er búið að yfirfara blöndunartæki
Stofa, borðstofa og eldhús eru í fallegu og opnu rými með útsýni. Útgengi er út á rúmgóðar 11,3 fm suður svalir, leyfi er fyrir svalalokun.
Eldhús er með hvítri innrréttingum frá HTH með ofni og helluborði, auk barborðs.
Þvottarými er með flísum á gólfi.
Sérgeymsla (7,3 FM) í kjallara er ný máluð, einnig er sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
Ítarlegri upplýsingar um eignina:· Íbúðin er öll nýlega máluð auk geymslu í kjallara.
· Nýjar sérsniðnar gardínur frá Álnabæ.
· Öll blöndunartæki eru nýlega yfirfarin af fagaðila.
· Búið er að leggja rafmagnstengil fyrir rafhleðslustöð í bílstæði eignar.
· Búið er að greiða fyrir teikningar vegna svalalokunnar.
- Sameign er nýlega máluð og settir nýir póstkassar, mjög snyrtileg sameign.
Harðparket er á hluta íbúðar og vínylflísar. Stæði fylgir í upphitaðri bílageymslu.
Virkilega falleg eign þar sem stutt er í grunn- og leikskóla ásamt íþóttastarfi HK. Eign sem hægt er að mæla með í góðu fjölbýlishúsi með lyftu.Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðrún Þórhalla Helgadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 820-0490 eða á netfangið gudrun@remax.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.