Nýtt Heimili fasteignasala og leigumiðlun kynnir:
*** Eignin er seld með fyrirvara um fjármögnun ***
Snyrtileg tveggja herb. íbúð við Arahóla 4 á 3. hæð(303), ásamt sér geymslu í sameign - lyftuhús - mikið útsýni - rúmgóðar lokaðar suðursvalir. Íbúðin er skráð 62,8 fm, þar af er geymsla í kjallara 4,9 fm.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit STRAX
Nánari lýsing:
Snyrtileg íbúð á þriðju hæð við Arahóla 4. Mikið útsýni og yfirbyggðar svalir. Íbúðin skiptist í hol, stofu með útgengi á yfirbyggðar svalir, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi með baðkari. Sér geymsla er í sameign og sameiginlegt þvottahús með tveimur þvottavélum og einum þurrkara. Eignin er í útleigu.
Arahólar 2 og Arahólar 4 eru steinsteypt fjölbýlishús á sjö hæðum auk kjallara. Arahólar 6 er steinsteypt fjölbýlishús á þremur hæðum auk kjallara. Húsin standa á sameiginlegri óskiptri lóð Arahólar 2-6.
Í kjallara hússins er sameiginleg hjólageymsla og sameiginlegt þvottahús með þurrkaðstöðu. Tengi fyrir uppþvottavél og þvottvél í eldhúsinnréttingu. Sér geymsla er í kjallara hússins.
Barnvænt hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir, ýmsa þjónustu og gönguleiðir..
Íbúðin er með tímabundinn leigusamning til 31. janúar 2023.
Allar nánari upplýsingar veitir Reynir Erlingsson löggiltur fasteignasali í síma 414-6600 / 820-2145 / reynir@nyttheimili.is
Nýtt Heimili - Fasteignasala og leigumiðlun - Sími 414-6600 - Hamraborg 12 - 200 Kópavogur.
Líka á facebook - Smelltu hér / NyttHeimili.
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér og pantaðu frítt sölumat.
Vantar þig leigjanda? Vantar eignir í leigumeðferð. Smelltu hér.
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
111 | 63.6 | 42,8 | ||
105 | 44.5 | 39,9 | ||
104 | 65.3 | 39,9 | ||
110 | 50.4 | 39,9 | ||
110 | 58 | 42,5 |