Eignin er seld með fyrirvara um fjármögnun
Fallegt og vel skipulagt 10 herbergja endaraðhús ásamt endabílskúr við Brekkusel í Seljahverfinu. Innangengt er í bílskúrinn úr garði hússins. Skjólgóður garður með sólpalli og heitum pott. Gott útsýni er úr eigninni yfir Reykjavík. Mögulegt er að útbúa aukaíbúð á jarðhæð hússins. Eign sem býður upp á mikla möguleika.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 262,4 fm. og þar af er bílskúr 23,8 fm. Gólfflötur efstu hæðar er stærri en skráðir fermetrar.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir, lögg.fasteignasali í síma 899 5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.isNánari lýsing eignar:Neðri hæð skiptist í forstofu, þrenn svefnherbergi, þvottahús, stórt sturturými og geymslu.Forstofa með flísum á gólfi.
Svefnherbergi I mjög rúmgott er inn af forstofu, parket á gólfi. Skv. teikningum var þar gert ráð fyrir þvottahúsi og allar lagnir til staðar fyrir þvottahús eða eldhús.
Hol rúmgott með flísum á gólfi, útgengt er út í garð af hæðinni.
Svefnherbergi II rúmgott með nýju parketi.
Svefnherbergi III rúmgott með parketi á gólfi.
Sturtuherbergi með glugga og flísalagt. Inn af sturturýminu er
geymsla með glugga.
Þvottahús með vask og flísum á gólfi.
Stigi með gegnheilum þrepum liggur upp á miðhæð hússins.
Miðhæðin skiptist í eldhús, tvennar stofur, herbergi, vinnuherbergi og salerni. Léttir veggir eru á hæðinni og því auðvelt að breyta skipulagi hæðarinnar.Eldhús með vel skipulagðri innréttingu, rúmgóðum eldhúskrók, tengi fyrir uppþvottavél, gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu og getur ísskápur fylgt eigninni. Flísar á gólfi.
Vinnuherbergi er inn af eldhúsi með parketi á gólfi.
Stofa og borðstofa eru samliggjandi og rúmgóðar, mjög fallegt útsýni er úr stofunum og parket á gólfi.
Svefnherbergi IIII er í dag nýtt sem sjónvarpsherbergi, nýtt parket á gólfi. Útgengt er út á rúmgóðar svalir úr herberginu.
Gestabaðherbergi er á hæðinni með flísum á gólfi.
Stigi með gegnheilum þrepum liggur upp á efri hæð hússins.
Efri hæðin skiptist í dag í 2 stór svefnherbergi og baðherbergi. Skv. teikningu eiga að vera 3 herbergi á hæðinni og auðvelt að breyta því aftur.Stigapallur er mjög rúmgóður með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi rúmgott með fataherbergi og útgengt út á svalir.
Svefnherbergi er mjög stórt og var áður tvö herbergi með fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi með baðkari, sturtuklefi, gluggi, innrétting og flísalagt í hólf og gólf.
Geymslurými rúmgott, undir súð og er ekki skráð inn í fermetratölu eignarinnar.
BÍLSKÚR OG LÓÐ:Bílskúr er skráður 23,8 fm. Í bílskúrnum er milliloft. Hiti er í bílskúr, heitt og kalt vatn. Bílastæði er fyrir framan bílskúrinn og er hann staðsettur næst húsinu og því hægt að ganga inn um hurð á hlið bílskúrsins úr garðinum. Bílastæði við bílskúrinn er upphitað.
Fyrir framan hús er hellulögð verönd. Gangstígur að húsinu er upphitaður. Bak við húsið er skjólgóður og sólríkur, afgirtur garður með sólpalli með heitum potti. Garður í góðri rækt.
FASTEIGNAMAT EIGNAR ÁRIÐ 2023 VERÐUR KR. 102.000.000
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. sveinbjörnsdóttir lögg.fasteignasali í síma 899 5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is