Helgafell fasteignasala ehf kynnir:BLÁENGI 5
Nýtt parhús á fallegum stað í Ölfusi.
Húsið er 5 herbergja (4 svefnherbergi), 175,1 fm. þar af er bílskúr 37,8 fm.
Eignin skilast á byggingastigi 5 (skv. ÍS-51-2001 staðli)
Bláengi er innan við 2 kílómetra frá Hveragerði. Í SAMRÁÐI VIÐ BYGGINGARAÐILA ER HÆGT AÐ FÁ EIGNINA AFHENTA STYTTRA, EÐA LENGRA KOMNA, EN SEM NEMUR BYGGINGASTIGI 5. ÝTTU HÉR TIL AÐ SÆKJA SÖLUYFIRLITEignin skiptist í:- Forstofu
- Fjögur svefnherbergi
- Tvö baðherbergi
- Rúmgott þvottahús
- Eldhús opið við stofu
- Innbyggður 37,8 fm. bílskúr.
Fasteignin er á einni hæð. Húsið er timburhús á staðsteyptum sökkli.
Húsið hvílir á þjappaðri fyllingu. Botnplata er staðsteypt með innsteyptum gólfhitalögnum.
Lóð og bílaplan verða grófjöfnuð. Búið verður að ganga frá frárennslis og ídráttarlögnum að heitum potti á garðpalli.
Frágangur utanhúss: (sjá nánar í skilalýsingu)Útveggir: Timburgrind, klætt að utan með hvítri og grári ál báruklæðningu
Þak: Hefbundið kraftsperruþak með valma. Aluzink þakklæðning, þakrennur eru utanáliggjandi.
Gluggar og útihurðir: Gluggar og hurðir eru pvc frá Gluggavinum, hvítir að innan en dökkgráir að utan.
Bílskúrshurð er frá Héðins hurðum ásamt rafdrifnum bílskúrshurðaropnara.
Aðgengi og lóð: Lóð og bílaplan eru grófjöfnuð.
Frágangur innanhúss: (sjá nánar í skilalýsingu)Gólf: Gólf eru afrétt
Veggir og loft: Veggir skilast með plötuklæðningu tilbúnir undir spörtlun og málun. Hurðargöt miðast við yfirfelldar hurðir.
Loft innan íbúða eru með tvöfaldri raflagnagrind, klædd með einföldu gifslagi.
Hitalögn: Botnplata með innsteyptum gólfhitalögnum, gólfhiti verður tengdur en án stýringa.
Rafmagn: Búið verður að leggja ídráttarrör og dósir í botnplötu auk milliveggja og draga fyrir vinnurafmagni. Aðaltafla verður komin en ófrágengin.
Annað:
Seljandi greiðir tengigjöld rafmagns og hita og gatnagerðargjöld.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem er innheimt við endanlegt brunabótamat (0,3%)
Byggingaraðili er Gunnar Albert Traustason húsasmíðameistari.Nánari upplýsingar veita:
Knútur Bjarnason, löggiltur fasteignasali, s: 775-5800 / knutur@helgafellfasteignasala.is
Kristján Þór Sveinsson, löggiltur fasteignasali s: 898-6822 / kristjan@helgafellfasteignasala.is