Hrönn Ingólfsdóttir lgfs. og Fasteignasalan TORG kynna í einkasölu: Glæsilega 3ja herbergja íbúð með sérinngangi og suð/vestur svölum á þriðju hæð í litlu og vönduðu fjölbýli við Breiðuvík 2 í Reykjavík. Íbúðin er einstaklega vel skipulögð rúmgóð og björt. Íbúðin er skráð 100,5 fm ásamt geymslu í sameign og skiptist þannig: tvö svefnherbergi, rúmgóð stofa/borðstofa, eldhús, baðherbergi og rúmgóðar svalir. Sérinngangur er í íbúðina af svölum á þriðju hæð og sérmerkt stæði úti á bílaplani.
Allar nánari upplýsingar og bókun einka skoðunar veitir Hrönn Ingólfsdóttir lgfs í síma: 692-3344 og hronn@fstorg.is. Nánari lýsing eignar:Forstofa: Rúmgóð og björt forstofa með fallegum sandsteini á gólfi og góðum skáp.
Eldhús: Einstaklega vönduð og rúmgóð sérsmíðuð innrétting úr kirsuberjavið með nýlegum tækjum. Ofn í vinnuhæð á tækjavegg. Sandsteinn á milli skápa.
Stofa + borðstofa: Stofan er björt og afar rúmgóð með útgengi út á rúmgóðar svalir. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með mjög góðum skápum. Parket á gólfi.
Barnaherbergi: Gott herbergi innaf forstofu með skáp. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Baðherbergið er með baðkari, sturtu og góðri sérsmíðaðri innréttingu úr kirsuberjavið. Flísalagt í hólf og gólf. Tengi fyrir þvottavél.
Geymsla: Í sameign er einnig sér geymsla ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu.
Þetta er glæsileg eign sem vert er að skoða á frábærum stað í Grafarvogi/Reykjavík þar sem stutt er í alla helstu þjónustu svo sem skóla, leikskóla og verslanir. Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Hrönn Ingólfsdóttir lgfs í síma: 692-3344 og hronn@fstorg.is.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.