Frábært tækifæri!!!
Domus fasteignasala og Ársæll lgfs. S:896-6076 kynna til sölu vinsælan veitingastað á Suðurlandi. Verið er að selja félag sem inniheldur fasteign með vel búnu eldhúsi, veitingasal og góðri starfsmannaaðstöðu. Búið er að innrétta 2 útleigueiningar 2 og 3 hæð með sérinngangi á gafli sem henta bæði fyrir skammtíma og langtíma leigu. Einnig er óinnréttað rými á 2 hæð þ.s er möguleiki á að gera íbúð. Þaðan er útgengt á stórar þaksvalir yfir eldhúsinu.
Mjög góð staðsetning.
Staðurinn hefur starfað óslitið frá 1994 og er mjög vel sóttur af heimamönnum og aðkomufólki bæði innlendu og erlendu. Vinsæll staður hjá hópum á sumrin bæði skóla og íþróttahópum. Einnig er mikið að gera t.d á sumrin þ.s eru skipulagðar hátíðir og íþróttamót.
Verið er að selja félagið sem inniheldur fasteign, öll tól og tæki í eldhúsi ásamt borðum, stólum, barborði og tækjum í veitingasal. Einnig húsbúnaður í gistirýmum.
Eldhús og starfsmannaaðstaða voru stækkuð 2019 og sett tvöföld pizzalína, grilllína með tvöfaldri pönnu og tveimur djúpsteikingarpottum, 6 fm kælir og flest tól og tæki endurnýjuð. Búið er að setja upp tjöld og sjónvörp þ.s hægt er sýna m.a leiki og íþróttaviðburði. Veitingasalur er með leyfi fyrir 50 manns.
Góð velta er um helgar bæði heimsendingum, sóttu pöntunum og í sal. Nokkrar stórar helgar eru á sumrin og er þá sett upp stórt útitjald. Gistireksturinn hentar vel með veitingarekstrinum.
Eignin er skráð 463,5 fm og skiptist þannig að 1 hæð veitingasalur, eldhús o.fl er 208,8 fm, 2 hæð gístirými o.fl. 103,1, risíbúð 35,4 (gólfflötur ca 55 fm.) og kjallari með geymslum 116,2 fm. Ekki er full lofthæð í hluta kjallarans.
Allar nánari upplýsingar veitir Ársæll Ó Steinmóðsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6076 og á netfanginu as@domus.is
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
861 | 490.4 | Tilboð |