Fasteignaleitin
Skráð 20. júní 2026

Dvergaholt 7

FjölbýlishúsNorðurland/Akureyri-603
80.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
71.900.000 kr.
Fermetraverð
893.168 kr./m2
Brunabótamat
62.760.000 kr.
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
25256151
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Borg fasteignasala ehf. (Einar Pálsson lgf. einar@fastborg.is; 857-8392) kynna fallega og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á þriðju, efstu hæð í góðu fjölbýli með fallegu útsýni og lyftu að Dvergaholti 7, (íbúð 307) 603 Akureyri. Sér bifreiðarstæði fylgir íbúðinni í bílahúsi hússins sem er á jarðhæð ásamt sér geymslu og sameiginlegri vagna/hjólageymslu. Svalir til norð austurs. Djúpgámar eru í suð- austur horni bílastæðis.

Húsið er byggt árið 2023 af Trétak ehf. Íbúðin (01 0307) er 77 m2 að stærð samkvæmt opinberum skráningum HMS og sér geymsla (0036) á jarðhæð hússins skráð 3,5 m2. Bifreiðarstæði í bílahúsi merkt (01 B53) og svalir (01 0323) skráðar 7,1 m2. Hiti er í gólfum íbúðarinnar.Gólfin eru öll með parketi nema baðherbergið en þar eru flísar á gólfi. Loftskiptakerfi er í íbúðinni.

Lýsing eignar:
Forstofa er með parketi á gólfi og er fataskápur á gangi við alrými eignar.
Eldhús er opið við stofu (alrými), með parketi á gólfi. Eldhúsinnrétting er með efri- og neðri skápum. Útgengt er á svalir til norð- austurs úr stofu. Möguleiki á svalarlokun.
Hjóna- og barnaherbergi eru með parket á gólfi og föstum fataskápum.
Baðherbergi er nokkuð rúmgott með flísum á gólfi, sturta með glerhurðum, upphengdu klósetti, ágæt innrétting með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. 

Allar nánari upplýsingar veitir Einar Pálsson, löggiltur fasteignasali í síma 857-8392 eða á netfanginu einar@fastborg.is

-Ljósleiðari er tengdur inn í íbúðina


Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnun.ar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (20)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Silfursmári 2
Bílastæði
Skoða eignina Silfursmári 2
Silfursmári 2
201 Kópavogur
116 m2
Fjölbýlishús
312
Fasteignamat 98.500.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Njálsgata 49
Skoða eignina Njálsgata 49
Njálsgata 49
101 Reykjavík
106.5 m2
Fjölbýlishús
312
797 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Mosagata 11
Bílastæði
Skoða eignina Mosagata 11
Mosagata 11
210 Garðabær
108 m2
Fjölbýlishús
4
879 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Lynggata 2
Bílastæði
Skoða eignina Lynggata 2
Lynggata 2
210 Garðabær
93.4 m2
Fjölbýlishús
312
845 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin