Íbúðin er SELD - Með fyrirvara!2JA HERBERGJA ÍBÚÐ Á ÞESSUM VINSÆLA STAÐ - 103 REYKJAVÍK.Samkvæmt skráningu HMS Fasteignamati er birt flatarmál eignarinnar 57,5 fm.Um er að ræða rúmgóða 2ja herb. íbúð á 1. hæð í steinsteyptu lyftuhúsnæði byggðu árið 1985.
Íbúðin er með einu svefnherbergi, baðherbergi, eldhúsi sem er opið í stofuna, stofu og forstofu. Lítil sér verönd til suðurs. Gengið er inn í rúmgóða forstofu, strax til hægri er baðherbergið, inn af forstofunni er gengið inn í stofuna, en þar til hægri er svefnherbergið. Eldhúsið er til vinstri inn af stofunni. Útgangur er út á litla sér verönd úr stofunni. Sameiginlegt þvottahús ásamt vagna- og hjólageymslu er í kjallara hússins. Sér geymsla fylgir íbúðinni einnig í kjallara (skv. skráningu er hún ekki inn í fermetratölu eignarinnar).
Forstofa: Fataskápur og dúkur á gólfi.
Eldhús: Gott skápapláss, opið í stofuna og dúkur á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Útgangur út á sér suður verönd.
Svefnherbergi: Gott skápapláss og rúmgott herbergi, dúkur á gólfi.
Baðherbergi: Baðkar með sturtuhengi og dúkur á gólfi.
Geymsla: Sér geymsla fylgir íbúðinni í kjallara.
Í sameign er sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla.
Íbúð í snyrtilegu umhverfi, sameiginlegur garður, eftirsóttur stað í göngufæri Kringluna, stofnbrautir og stutt í miðbæin sem og alla helstu þjónustu og skóla.Allar nánari uppl. og skoðun veitir:
Jóhann Friðgeir, lgf GSM: 896-3038 e-mail:
johann@hofdi.is