Fasteignaleitin
Skráð 18. feb. 2025
Deila eign
Deila

Sporatún 13

RaðhúsNorðurland/Akureyri-600
142.9 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
94.900.000 kr.
Fermetraverð
664.101 kr./m2
Fasteignamat
85.150.000 kr.
Brunabótamat
74.450.000 kr.
Mynd af Árni Helgason
Árni Helgason
Löggiltur Fasteignasali
Byggt 2012
Þvottahús
Bílskúr
Aðgengi fatl.
Sérinng.
Fasteignanúmer
2324389
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
upprunalegt
Raflagnir
upprunalegt
Frárennslislagnir
upprunalegt
Gluggar / Gler
upprunalegt
Þak
upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd austan og vestan
Lóð
100
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Kvöð / kvaðir
Kvöð er um aðgengi að séreignarlóðahluta á baklóð (austan), sjá lóðarleigusamning gr. 2.0.1.
Domusnova hefur fengið rúmgott 4-5 herbergja raðhús við Sporatún á Akureyri. Húsið var byggt 2012 og sami eigandi búið í því frá upphafi. Inanngengt er í bílskur og steyptur pallur vestan við húsið og steypt verönd austan við. Stutt í skóla, leikskóla og matvöruverslun. Friðsælt og gott hverfi.

Þegar komið er að húsinu er bílskúr á vinstri hönd og steyptur pallur með steyptum skjólveggjum á hægri hönd. Gengið inní bílskúr af stéttinni eða úr þvottahúsi inni í húsinu. Forstofa leiðir inná gang hvar aðalsvefnherbergi er á vinstri hönd, baðherbergi beint af augum og tvö herbergi sitt hvoru megin gangs. Eldhús og stofa í stóru sameiginlegu rými við enda gangs. Gengið er inní skrifstofu/geymslu úr forstofu. Góð steypt verönd við austurhlið og útgengt úr eldhúsi á hana. Útgangur úr stofu á pall til vesturs. Úr forstofu er gengið til vinstri inní þvottahús með góðri innréttingu og er gestasalerni þar innaf. Gengið inní bílskúr frá þvottahúsi. Tvö bílastæði eru fyrir framan bílskúr og bætt hefur verið við bílastæði við suðurenda lóðar, vestan megin.

Stofa og eldhús eru í alrými með parketi, útgengt á steyptan pall til vesturs og steypta verönd til austurs og er þar þvottasnúra.
Gangur er með parketi.
Hjónaherbergi er með parketi, gluggi til austurs, góðir skápar.
Tvö herbergi til viðbótar, snýr annað til austurs en hitt til vesturs.
Vinnuherbergi/geymsla er við hlið forstofu.
Baðherbergi er við hlið hjónaherbergis með walk-inn sturtu, flísar á gólfi og veggjum.
Gestasalerni innaf þvottahúsi, flísar á gólfi.
Þvottahús er innaf forstofu og gengið inní bílskúr úr því sem og gestasnyrtingu, flísar á gólfum.
Forstofa er með góðum skáp og gengið í þvottahús til vinstri sem og vinnuherbergi/geymslu og beint af augum inní íbúðina.
Bílskúr er rúmgóður, innkeyrsludyr opnanlegar með fjarstýringu og inngöngudyr sem snúa til suðurs.

Skv. eignaskiptayfirlýsingu er sérafnotaflötur samsíða eigninni bæði að austan og vestan, engin rými eru í sameign.
Stofa, eldhús, gangur og herbergi eru með parketi sem er upprunalegt. Flísar eru á forstofu, bílskúr, þvottahúsi og baðherbergjum. Við austurverönd eru þvottasnúrur.
Skóli og leikskólar í göngufæri og stutt í verslanir. Stutt er í útivist og gönguleiðir, golfvöllur Akureyringa er í göngufæri. Kyrrlátt og gott hverfi.


Í samræmi við 2.mgr. 14.gr. L.70/2015 er upplýst að fasteignasali er tengdur seljendum fjölskylduböndum og með staðfestingu söluyfirlits staðfestir tilboðsgjafi að hann/hún/þeir/þær/þau er upplýstur um það og geri ekki athugasemdir við það.

Nánari upplýsingar veita:
Árni Helgason löggiltur fasteignasali / s.663 4290 / arni@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
20/08/201329.450.000 kr.37.400.000 kr.142.9 m2261.721 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 2012
28.8 m2
Fasteignanúmer
2324389
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
07
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
11.400.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hafnarstræti 26c íbúð 205
Hafnarstræti 26c íbúð 205
600 Akureyri
130.1 m2
Fjölbýlishús
523
714 þ.kr./m2
92.900.000 kr.
Skoða eignina Aðalstræti 16 eh.
Aðalstræti 16 eh.
600 Akureyri
173.4 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
715
536 þ.kr./m2
92.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarstræti 26B 205
Hafnarstræti 26B 205
600 Akureyri
130.1 m2
Fjölbýlishús
513
746 þ.kr./m2
97.000.000 kr.
Skoða eignina Hofsbót 2 íbúð 204
Hofsbót 2 íbúð 204
600 Akureyri
120.3 m2
Fjölbýlishús
322
822 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin