Björt og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í góðu fjölbýlishúsi með lyftu á þessum eftirsótta stað við Garðatorg í Garðabæ.
** Frábær staðsetning miðsvæðis í Garðabæ
** Stæði í bílakjallara
** Gott aðgengiNánari upplýsingar veita:
Árni B. Kristjánsson B.A í lögfræði / aðstoðarmaður fasteignasala S: 616-2694 arni@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson lgf. S: 775-4000 palli@palssonfasteignasala.is
*****www.palssonfasteignasala.is*****
****www.verdmat.is****Birt stærð eignar samkv. Þjóðskrá Íslands er 101,50 m2. Fasteignamat ársins 2023 er 66.850.000 kr. Íbúðin skiptist í forstofu, baðherbergi, eldhús, stofa, tvö svefnherbergi, þvottaherbergi, geymsla og stæði í bílakjallara. Svalir út frá stofu.
Nánari lýsing:
Forstofa er flísalögð og með fataskápum.
Baðherbergi er með glugga, flísalagt gólf og veggir, flísalögð sturta og fín innrétting.
Barna/gesta herbergi er parketlagt og rúmgott með fataskápum.
Þvottaherbergi er með flísalögðu gólfi, hillum og vaski.
Hjónaherbergi er stórt, parketlagt og með fataskápum á heilum vegg.
Stofan er mjög rúmgóð, parketlögð og björt með útgengi á rúmgóðar og
skjólsælar svalir til suðurs með glerlokun. Eldhúsið er parketlagt og með fallegum viðarinnréttingum með flísum á milli skápa og tengi fyrir uppþvottavél. Gluggi er á eldhúsi.
Sér
geymsla er í kjallara hússins.
Lóðin er fullfrágengin með góðri aðkomu, fjölda malbikaðra bílastæða og hellulagðri stétt fyrir framan húsið með hitalögnum undir.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð og öll þjónusta er í göngufæri, s.s. heilsugæsla, matvöruversluna, veitingahús, verslanir, bókasafn, sundlaug Garðabæjar o.fl.
Smelltu hér fyrir góð ráð fyrir kaupendurNýjustu fréttir af fasteignamarkaðnumGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.