Til sölu eða leigu: Nýtt 42,9fm fullbúið ENDABIL við Vallarhverfið. Gluggar á 2 hliðar. Möguleiki á 17fm millilofti. 3ja fasa rafmagn, salerni í sameign. 90% viðbótarlán frá IMIROX á 0,9% vöxtum!
Til sölu eða leigu: Borgahella 13-15 - ENDABIL með glugga á 2 hliðum - atvinnuhúsnæði (geymsla, lager, frístundir) við Borgahellu 13-15, Hafnarfirði. Birt stærð 42,9fm. Möguleiki á 17fm millilofti. Frábær staðsetning við Vallarhverfið.
Svæðið: Nýtt glæsilegt atvinnuhúsnæði og/eða geymsla/lager á malbikaðri afgirtri 4.157 fm lóð (öryggisgirðing) með lokuðu rafstýrðu aðgangshliði við Borgahellu 13-15, 221 Hafnarfirði. Samtals eru 38 bil á sameiginlegri lóð og hvert bil um 42,5 fm að stærð. Steyptir sökklar og botnplata. Burðarvirki fasteignar er úr hágæða límtrésbitum og límtréssúlum frá Límtré Vírnet. Þak og útveggir eru úr stál-samlokueinignum með harðpressaðri steinull frá Límtré Vírnet. Eignin afhendist fullfrágengin utan sem innan.
Húsnæðið: Breidd húsnæðis 4,6 fm og lengd 9,2 fm. Vegghæð við útvegg er 3,5m og 4,7m innst í hverju bili. Möguleiki á millilofti allt að 17fm. Innkeyrsludyr með rafmótor 3,0m á hæð og 2,5m á breidd. Inngöngudyr við hlið innkeyrsludyra og gluggi fyrir ofan inngöngudyr með opnanlegu fagi. Á endabilum eru gluggar á gafli.
Frágangur: Gólf eru járnbent staðsteypt, vélslípuð og máluð með epoxy málningu. Skolvaskur og blöndunartæki verða uppsett. Skólprör undir plötu sem gefur möguleika á uppsetningu fyrir klósett. Niðurfall í gólfi. Ofn uppsettur. Raflögn frágengin með 3ja fasa rafmagni og rafmagstöflu. Lýsing í loftum frágengin. Útilýsing við innkeyrsludyr.
Lóðin afhendist fullfrágengin, afgirt með 2m girðingu, og aðgangsstýrðu hliði. 16 sameiginleg bílastæði á lóðinni. Lóð verður malbikuð, með niðurföllum, og bílastæði merkt. Sameiginleg sorptunnugeymsla. Sameiginleg salernisaðstaða. Húsfélag er stofnað um sameign og mun tryggja góða umgengni.
Mikil áhersla hefur verið lögð á hágæða byggingarefni og fullbúinn frágang svo fasteignin verði fullbúin og tilbúin til notkunar við afhendingu.
Engin VSK kvöð er á húsnæðinu. Það hentar einstaklingum jafnt sem fyrirtækjum.
Viðbótarlán: IMIROX ehf. býður lögaðilum viðbótarlán upp í 90% á þessa eign - 0,9% fastir óverðtryggðir ársvextir á vaxtagreiðslulán í evrum. Frekari upplýsingar um fasteignalán IMIROX á www.imirox.is
Vinsamlegast sendið fyrirspurnir varðandi eignina á info@titaya.com eða hringið í síma 775-3993.
Þessi eign er í beinni sölu, þ.e. án milligönguaðila. Titaya ehf. er fasteignafélag og selur eingöngu eigin eignir.
Finndu frekari upplýsingar um eignina á www.e-fasteignir.isDagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
---|---|---|---|---|---|
10/08/2022 | 727.000 kr. | 494.000.000 kr. | 1617.2 m2 | 305.466 kr. | Nei |
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
221 | 42.9 | 25,9 | ||
221 | 42.8 | 25,9 | ||
221 | 42.8 | 24,9 | ||
221 | 42.9 | 24,9 | ||
221 | 42.9 | 24,9 |