Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Vesturberg. Vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð í snyrtilegu, mikið endurnýjuðu fjölbýli á þessum vinsæla stað í Breiðholti.
Komið er inn í rúmgóða forstofu með fatahengi.
Eldhúsið er með hvítri innréttingu, góðu skápaplássi og fínni vinnuaðstöðu.
Rúmgóður borðkrókur er í eldhúsinu.
Baðherbergið sem er flísalagt í hólf og gólf er með fallegri innréttingu og baðkari. Tengi er fyrir þvottavél á baðherberginu.
Þrjú rúmgóð svefnherbergi eru í íbúðinni, tvö þeirra eru með fataskápum.
Rúmgóð geymsla er innan íbúðarinnar.
Stofan er rúmgóð og björt og útgengt er úr stofu út á stórar, yfirbyggðar, flísalagðar svalir með stórkostlegu útsýni.
Í sameigninni er sér geymsla sem tilheyrir íbúðinni ásamt þurkherbergi og hjóla og vagnageymslu. Húsið hefur verið mjög mikið endurnýjað til dæmis hefur það verið klætt með viðhaldsléttri álklæðningu, einnig hefur verið skipt um glugga og gler á allri bakhliðinni. Allar svalir í húsinu eru með svalalokunum.
Gólfefni íbúðarinnar eru flísar og parket.
Þetta er skemmtileg eign á góðum stað í Breiðholti þar sem stutt er í þjónustu svo sem, skóla og leikskóla, íþróttir og verslun.
Vantar allar gerðir eigna á skrá. Fagleg og góð þjónusta.
Nánari upplýsingar gefur:
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 863-1126
josep@fastgraf.is