**Hafðu samband og bókaðu skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555**
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög fallegt 312,2 m2 einbýlishús á einni hæð með stórum innbyggðum bílskúr á frábærum stað við Kvíslartungu 8 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 312,2 m2, þar af einbýli 232,3 m2 og bílskúr 79,9 m2.
Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, borðstofu, eldhús, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, gestasnyrtingu, fataherbergi, þvottahús og bílskúr. Fallegt útsýni. Gott skipulag. Fallegar innréttingar. Vönduð tæki. Góð lofthæð og mikil innbyggð lýsing.
Húsið er klætt með flísum frá Álfaborg. Rúmgóð afgirt timburverönd í suðurátt með heitum potti. H
úsið stendur á fallegum stað innarlega í botnlanga í neðstu götunni við Kvíslartungu.
Eftir á að klára ýmsan frágang á eigninni. t.d klára þakkant, lóð er að miklu leiti ófrágengin, Eftir á að klára baðherbergin.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent
Nánari lýsing:
Forstofa: Er með stórum fataskápum og harðparketi á gólfi.
Hjónaherbergi: Er rúmgott með harðparketi á gólfi. Inn af hjónaherbergi er fataherbergi með miklu skápaplássi og baðherbergi með sem eftir á að leggja lokahönd á, búið er að setja baðkar, salerni, skolskál og litla innréttingu með vaski. Sturtuhaus er kominn í loft og öll blöndunartæki fylgja. Úr hjónaherbergi er gengið út á timburverönd.
Barnaherbergi nr 1: Er með fataskápum og harðparketi á gólfi.
Barnaherbergi nr 2: Er með fataskápum og harðparketi á gólfi.
Barnaherbergi nr 3: Er með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi: Er flísalagt með vegghengdu salerni. Eftir á að klára sturtu, flísaleggja einn vegg og setja upp innréttingu. Innrétting með vaski, flísar, handklæðaofn og blöndunartæki fylgja. Gluggi er á baðherbergi.
Gestasnyrting: Er með vegghengdu salerni og innréttingu. Eftir á að flísaleggja gólf.
Þvottahús/geymsla: Er mjög rúmgott með innréttingu, vaski, vinnuborði og snúrum, flísar á gólfi. Úr þvottahúsi er aðgengi upp á háaloft.
Eldhús, hol, stofa og borðstofa: Er í mjög stóru og björtu opnu rými með harðparketi á gólfi. Í eldhúsi er stór og falleg innrétting með góðum vinnuskáp og eyju frá GKS. Steinn er á borðum og eyju frá Granítsmiðjunni. Í innréttingu eru tæki frá MIELE, innbyggð uppþvottavél, spanhelluborð, blástursofn, gufuofn, örbylgjuofn og kaffivél. Úr stofu og úr borðstofu eru stórar rennihurðir út í bakgarð. Gert er ráð fyrir gasarinn í stofu. Brennari ca. 180 cm fylgir.
Bílskúr: Er skráður 79,9 m2 með flísum á gólfi. Tvær innkeyrsludyr og tvær inngangsdyr. Innrétting, rafmagn, hiti og rennandi vatn er í bílskúr.
Verð 185.000.000 kr.
Allar nánari upplýsingar fást hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar í síma 586 8080.
Einnig er hægt að ná í Svanþór í síma 698-8555, svanthor@fastmos.is,Sigurð í síma 899-1987, sigurdur@fastmos.is og Theodór í síma 690-8040, teddi@fastmos.is
Fasteignasala Mosfellsbæjar, Þverholti 2, Mosfellbæ. Opið frá kl. 9-17 alla virka daga
Heimasíða Fasteignasölu Mosfelsbæjar
Fasteignasala Mosfellsbæjar á Facebook
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.