Fasteignasalan TORG Kynnir: Glæsilegt 6. herbergja Svansvottað raðhús á tveimur hæðum í Urriðaholti. Um er að ræða umhverfisvæn og heilnæm hús sérsniðin að þörfum fjölskyldufólks. Húsin eru staðsett ofarlega í austurhluta hverfisins við hlið skóla, leikskóla, íþróttasvæðis og almenningsgarðs. Húsið skiptist í 5 svefnherb., þvottaherbergi, tvö baðherbergi, sjónvarpshol, eldhús, stofu og borðstofu með útgengi út á timburpall, heitapotti auk geymslu fyrir framan húsið. Allar nánari upplýsingar veitir Svavar Friðriksson aðstm. lögfs. GSM 623-1717 eða svavar@fstorg.is. Sigurður Gunnlaugsson fasteignasali.
Nánari lýsing:
Eignin er með 5 rúmgóð svefnherbergi.
Sjónvarpshol er á efri hæð, með teppi á gólfi.
Stigi milli hæða er teppalagður.
Baðherbergin eru tvö, annað með baðkari, bæði með sturtu, og eru flísalögð.
Þvottaherbergið er rúmgott, með innréttingu og flísar á gólfi.
Eldhúsið er mjög rúmgott með góðri innréttingu, fallegri eyju, opið inn í stofu og borðstofu. Útgengt er úr stofu út á stóran timburpall til suð- suð-austur. Fyrir framan húsið er hellulagt rúmgott svæði sm snýr í vestur með heitapotti ásamt upphitaðri geymslu sem er fyrir framan húsið. Heitur pottur fylgir eigninni.
Samantekt: Um er að ræða alls 180,6fm 6 herbergja raðhús á tveimur hæðum. Húsið er byggt úr krosslímdum timbureiningum í samstarfi við Element ehf. og framleiddar af KLH Massivholz í Austurríki og unnar úr sjálfbærum evrópskum skógum.
Nánar um raðhúsin: verkefnið er Svansvottað í samstarfi við Umhverfisstofnun, þar sem hagað var bæði hönnun og efnisvali með þeim hætti að kröfur umhverfisvottunar Svansins séu uppfylltar. Svanurinn er opinbert norrænt umhverfismerki og strangar kröfur vottunarinnar um lágmörkun umhverfisáhrifa eiga tryggja að Svansmerkt vara sé betri fyrir umhverfið og heilsuna án þess að fórna gæðum. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu byggingaraðila, www.vistbyggd.is Til ferkari upplýsinga: um er að ræða heildaryfirbragð allra rað-húsa á lóðinni og er lóðin og séreignarhlutar hennar fullhannaðir og með fullfrágengum skjólveggjum, gróðri og heita potti upp við geymsluskúr, fyrir aftan hús er afgirtur timburpallur.
Tvö bílastæði fylgja eigninni og tengi fyrir rafhleðslustöð.
Allar nánari upplýsingar veitir Svavar Friðriksson aðstm.lögfs. GSM 623-1717 eða svavar@fstorg.is. Sigurður Gunnlaugsson löggiltur fasteignasali.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.500,-
3. Lántökugjald lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu er samkv. verðskrá.