Fasteignaleitin
Skráð 26. júní 2026

Urriðaholtsstræti 11 (203)

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
127.3 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
122.900.000 kr.
Fermetraverð
965.436 kr./m2
Brunabótamat
87.940.000 kr.
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
253479217
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

--- Glæsileg 3ja herbergja íbúð fyrir 50 ára og eldri í Garðabæ með bílastæði í bílakjallara, tveimur baðherbergjum, fataherbergi og þvottaherbergi ---

Skoða verkefnið nánar á hlekk: www.nordurhlid.is - Upplýsingar gefur: Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS

LIND Fasteignasala og ÞG Verk kynna með stolti: Nýjar og glæsilegar íbúðir við Urriðaholtsstræti 11 í Urriðaholti, 210 Garðabæ fyrir 50 ára og eldri. Um er að ræða fjölbreyttar 2ja - 4ra herbergja íbúðir í lyftuhúsi og fylgja bílastæði í bílakjallara flestum íbúðum. Svalir eða sérafnotaflötur fylgir öllum íbúðum ásamt séreignageymslu í jarðhæð. 

Glæsileg sameign (miðrými) eru í húsunum með útsýni að Heiðmörk. Miðrýmið skilast fullbúið með tveimur golfhermum, billiard aðstöðu, æfingasal og hlýlegri setustofu sem er hentug fyrir afslöppun, fundi eða óformlega samveru. Einnig verður eldhúsinnrétting, borð og stólar fyrir veislur, spilakvöld eða öðru líkt þar sem notalegt andrúmsloft ræður ríkjum. Auk þess er þvottaaðstaða fyrir bifreiðar í bílakjallara fyrir íbúa.

Íbúð 203: Er glæsileg 127,3 fermetra þriggja herbergja íbúð á 2. hæð með rúmgóðum svölum til suðurs, tveimur baðherbergjum, fataherbergi og þvottaherbergi. Rúmgóð geymsla fylgir íbúðinni sem er 11,4 fermetrar að stærð auk bílastæðis í bílakjallara. Afhending er í ágúst 2025 með fyrirvara um að öryggisúttekt sé komin á húsið.

Nánari lýsing: Íbúðin skiptist í forstofu, gang, eldhús í alrými með eyju sem er opið við stofu/borðstofu, 2 svefnherbergi (þar af er hjónasvíta með sér baðherbergi og fataherbergi), 2 baðherbergi, fataherbergi og þvottaherbergi. Útgengi á svalir til suðurs frá stofu.

ATH: Ljósmyndir innan úr íbúð eru úr sýningaríbúð og endurspegla ekki skipulag þessarar íbúðar.

Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klæddir með álklæðningum sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini.

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA:
Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS

Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins: www.nordurhlid.is

Húsin eru vel staðsett steinsnar við Heiðmörk. Einn besti golfvöllur landsins (Oddur) er í göngufæri og sömuleiðis útivistarsvæðin í Heiðmörk, Vífilstaðarhrauni og við Urriðavatn. Efst á Háholti er gert ráð fyrir blandaðri byggð íbúða og þjónustu s.s verslun, heilsugæslu, skólum og íþróttamannvirkjum.

ÞG Verk hafa yfir 25 ára reynslu á byggingarmarkaði. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð ÞG verks og fyrirtækið kappkostar að eiga gott samstarf við viðskiptavini sína. 

Ef misræmi er á milli eignaskiptasamnings, söluyfirlits og/eða sölusíðu þá gilda þær upplýsingar sem koma fyrir í eignaskiptasamningi og samþykktum teikningum. 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Lind fasteignasala ehf
www.fastlind.is

Myndir (22)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sjávarborg 1 A
Skoða eignina Sjávarborg 1 A
Sjávarborg 1 A
190 Vogar
130.4 m2
Raðhús
514
764 þ.kr./m2
99.600.000 kr.
Skoða eignina Silfursmári 2
Bílastæði
Skoða eignina Silfursmári 2
Silfursmári 2
201 Kópavogur
116 m2
Fjölbýlishús
312
Fasteignamat 98.500.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Njálsgata 49
Skoða eignina Njálsgata 49
Njálsgata 49
101 Reykjavík
106.5 m2
Fjölbýlishús
312
797 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Mosagata 11
Bílastæði
Skoða eignina Mosagata 11
Mosagata 11
210 Garðabær
108 m2
Fjölbýlishús
4
879 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin