Fasteignaleitin
Skráð 4. júní 2026

Birkigrund 20

RaðhúsSuðurland/Selfoss-800
169.6 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
93.900.000 kr.
Fermetraverð
553.656 kr./m2
Brunabótamat
75.200.000 kr.
Sérinng.
Fasteignanúmer
22228253
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Fasteignasalan Heimaland kynnir í einkasölu, Birkigrund 20 á Selfossi
Um er að ræða parhús byggt árið 1995 innarlega í botnlanga í grónu hverfi miðsvæðis á Selfossi. Húsið er byggt úr timbri og klætt að utan með litaðri steni klæðningu, ljóst bárujárn á þaki. 
Eignin er samkvæmt teikningu 169,6 fm en bílskúr er 19,2 fm, þar af, upphaflega var húsið samkvæmt fasteignaskrá samtals 140,4 fm en byggt var við húsið árið 2014, 29,2 fm stúdíóíbúð/herbergi með sér baðherbergi. 

Húsið telur samkvæmt teikningu forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr. 
Í viðbyggingu er svo annað svefnherbergi, lítið alrými og lítið baðherbergi. Lagnir fyrir eldhúsi til staðar í viðbyggingu og þar er sér inngangur. Gæti hæglega nýst sem sér leigueining með sér inngangi. 
Eigninni hefur verið vel við haldið og er mikið endurnýjuð að innan. 


Nánari lýsing eignar: 
Forstofa er með upprunalegum flísum á gólfi og nýlegum rúmgóðum fataskáp. 
Inn af forstofu er svefnherbergi með einföldum fataskáp.
Tvö svefnherbergi eru á gangi, annað þeirra með rúmgóðum fataskáp.
Eldhúsinnrétting er nýleg hvít, rúmgóð með innbyggðum ísskáp. 
Stofa er björt og rúmgóð og þaðan er útgengt út á suður lóð með sólpalli og heitum potti. 
Úr stofu er einnig gengið inn í viðbygginguna sem skiptist í svefnherbergi með rúmgóðum fataskáp, alrými og lítið baðherbergi með sturtuklefa. Sér inngangur. 
Baðherbergi er mikið endurnýjað, með baðkari, sturtu, upphengdu wc og rúmgóðri innréttingu. 
Þvottahús er með innréttingu og gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. 
Úr þvottahúsi er gengið inn í bílskúr. 

Parket flæðir í gegn um eldhús, hol/gang og stofu ásamt því að vera á svefnherbergjum.
Flísar eru í forstofu og á votrýmum. Flísar eru einnig á bílskúr.

Garðurinn er gróin, rúmgóður sólpallur og heitur pottur á baklóð sem snýr í suður. Bílaplan er steypt og snyrtilega frágengið. 

Hér er um að ræða frábærlega staðsetta, snyrtilega og vel skipulagða eign í fjölskylduvænu hverfi á Selfossi, með möguleika á leigutekjum.
Stutt er í leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla, íþróttasvæði sem og aðra þjónustu. 


Nánari upplýsingar veita: 
Snorri Sigurðarson, löggildur fasteigna og skipasali, s: 897-7027, snorri@heimaland.is
Elísa Dagmar Björgvinsdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala í löggildingarnámi, s: 868-7938, elisa@heimaland.is


Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald kaupanda er skv. verðskrá. 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Heimaland hvetur því viðskiptavini sína og væntanlega kaupendur af fasteignum að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir tilboðsgerð eða eftir atvikum fyrir kaupsamningsgerð. Ef þurfa þykir ættu væntanlegir kaupendur að leita til þar til bærra sérfræðinga um aðstoð við slíka skoðun. 

www.heimaland.is,  Austurvegur 6, 800 Selfoss, Fasteignasalan Heimaland ehf.

 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignasalan Heimaland ehf.
http://heimaland.is/

Myndir (41)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Urriðaholtsstræti 24
Urriðaholtsstræti 24
210 Garðabær
90.2 m2
Fjölbýlishús
32
886 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Sjávarborg 5 C
Skoða eignina Sjávarborg 5 C
Sjávarborg 5 C
190 Vogar
130.4 m2
Raðhús
514
764 þ.kr./m2
99.600.000 kr.
Skoða eignina Sjávarborg 5 A
Skoða eignina Sjávarborg 5 A
Sjávarborg 5 A
190 Vogar
130.4 m2
Raðhús
514
764 þ.kr./m2
99.600.000 kr.
Skoða eignina Sjávarborg 5
Skoða eignina Sjávarborg 5
Sjávarborg 5
190 Vogar
130.4 m2
Raðhús
414
686 þ.kr./m2
89.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin