Domusnova, Ingunn Björg lgf. og Björgvin lgf. kynna : Einstaklega fallega, vel skipulagða og rúmgóða 4 - 5 herbergja íbúð á annari hæð með sérinngangi í fjórbýlishúsi við Tröllateig 19 í Mosfellsbæ. Mikil lofthæð er í íbúðinni sem gerir hana bjarta og skemmtilega.Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi, forstofu, geymslu sem möguleiki er á að útbúa sem herbergi, eldhús, stofu og borðstofu. Baðherbergi, þvottahús og hol. Íbúðinni fylgir köld útigeymsla á lóð. Tvö bílastæði með rafhleðlsustöð fylgja eigninni. Eignin er skráð 122,8 m2, þar af íbúð 119,5 m2 og köld geymsla 3,3 m2.
Íbúðin er frábærlega staðsett og í göngufæri við skóla, leikskóla, heilsugæslu og verslanir. Leikvellir og fallegar gönguleiðir eru í næsta nágrenni.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Flísar á gólfi, fataskápur.
Geymsla: Staðsett inn af forstofu. Flísar á gólfi, gluggi með opnanlegu fagi. Stærð 7,7 fm, möguleiki á að bæta við fjórða svefnherbergi.
Hol: Rúmgott og bjart hol tengir saman rýmin í eigninni. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Falleg innrétting sem hefur verið filmuð. Ofn í vinnuhæð, span helluborð, háfur. Opið úr eldhúsi inn i stofu. Harðparket á gólfi.
Þvottahús: Staðsett inn af eldhúsi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara undir vinnuborði. Innrétting með neðri skápum, vaskur, upphífanlegar snúrur. Flísar á gólfi, gluggi með opnanlegu fagi.
Stofa / borðstofa: Björt með gluggum á þrjá vegu. Útgengi á rúmgóðar suðvestur svalir með skjólvegg. Harðparket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgóður fataskápur, harðparket á gólfi.
Barnaherbergi 1: Fataskápur, harðparket á gólfi.
Barnaherbergi 2: Fataskápur, harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Rúmgott, flísalagt gólf og veggir að hluta. Innrétting með neðri skápum og háskáp. Rúmgóð sturta með sturtugleri, upphengt salerni.
Bílastæði: Tvö bílastæði fylgja eigninni með rafhleðslustöð fyrir einn bíl.
Útigeymsla: Köld útigeymsla fylgir eigninni.
Ath. Skv. Þjóðskrá Íslands er eignin skráð 4 herbergja en möguleiki er á að bæta við einu herbergi. Nánari upplýsingar veita:Björgvin Þór Rúnarsson löggiltur fasteignasali / s: 855 1544 / bjorgvin@domusnova.is
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.