Á austurströnd Melrakkasléttu er Raufarhöfn, nyrsta alla þorpa á Íslandi. Hvergi á Íslandi verður vornóttin bjartari né vetrardagurinn myrkari. Heimskautsbaugur er rétt við ströndina og á ásnum fyrir ofan þorpið er
Heimskautsgerðið, stærsta útilistaverk á Íslandi sem tvinnar saman íslenska menningu, bókmenntasögu og sígild vísindi við sérstæðar náttúruaðstæður.
Til sölu Aðalbraut 51 á Raufarhöfn, fastanr: 216-7053.
Lýsing eignar: 174,8 m² einbýli á tveimur hæðum, Fjögur stór svefnherbergi og tvær stofur.
Neðri hæð: Gengið inn í lítið anddyri þar sem strax á hægri hönd er stórt þvottahús og á vinstri hönd rúmgóð geymsla áfram inn úr anddyri er nýlega parketlagt hol þar sem strax á hægri hönd er flísalagt baðherbergi með sturtu og á vinstri hönd svefnherbergi. Áfram inn holið eru tvö svefnherbergi á hvora hönd. Í holenda er stigi upp á efri hæðina með palli, þar sem gengið er inn í húsið á suðurgafli.
Efri hæð: Komið upp stigann og inn í hol, þar sem tvær samliggjandi stofur eru á hægri hönd, á vinstri hönd er hjónaherbergi og svo eldhúsið. Í holendanum er salerni.
Mikið endurnýjuð eign með frábæru útsýni yfir innsiglinguna. Eignin er veðbandalaus og til afhendingar við kaupsamning.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Fasteignasala Reykjaness ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 39.000 m. VSK.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.