Domusnova fasteignasala og Sverrir Sigurjónsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna:Í einkasölu:
Vinalegt og vel viðhaldið
einbýlishús á góðum stað á Selfossi
Húsið er holsteinshús, klætt að utan með lituðu járni, þak er valmaþak klætt með máluðu járni. Í miðju hússins er steyptur kross og loftaplata er steypt.
Heildarstærð eignarinnar er 125,3m2 og er bílskúr 24,5m2 þar af.
Eignin telur:
2 svefnherbergi, bæði harðparketi á gólfi
Baðherbergi er flísalagt með ljósum flísum í hólf og gólf en þar er baðkar og fín innrétting.
Forstofa, hol og stofa eru með harðparketi á gólfi.
Eldhús er með upprunalegri sérsmíðaðri snyrtilegri innréttingu og dúk á gólfi
Innangengt er úr
þvottahúsi i
bílskúr og innaf þvottahúsi er
geymsla og stigi upp á háaloft.
Garðurinn er einstaklega skjólgóður.
Í heildina er um að ræða vel viðhaldna eign á frábærum stað.
Miklir möguleikar eru með þessa eign ef fólk vill stækka, bæði fram og upp, enda fordæmi fyrir slíku í götunni.
Nánari upplýsingar veitir:Sverrir Sigurjónsson löggiltur fasteignasali / s.662 4422 / sverrir@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.