Fasteignaleitin
Skráð 17. mars 2026

Tröllahraun 55

RaðhúsSuðurland/Hveragerði-810
164.5 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
Verð
115.900.000 kr.
Fermetraverð
704.559 kr./m2
Sérinng.
Fasteignanúmer
25382782
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Helgafell fasteignasala og Jón G. Sandholt kynna fullbúið parhús að Tröllahrauni 55, samtals 164,5 fm að stærð, þar af 31 fm bílskúr. Eignin skilast fullbúin að innan og utan, áætluð afhending áramótin 2026/2027.

Um er að ræða timburhús á steyptum sökklum með kraftsperrum og límtré í þaki. Húsið er klætt með litaðri báruálklæðningu í lit 9005 (svört). Þak er klætt ólituðu aluzink með álrennum. Framan á þakkanti er slétt álklæðning og bandsöguð timburklæðning máluð svört neðan í kanti.Gluggar og hurðir eru timbur/ál í lit 9005 með tvöföldu gleri, frá Byko eða sambærilegu.

Eignin er fullfrágengin að innan með vönduðum efnum og tækjum, þar á meðal gólfhita, innréttingum, lýsingu og gólfefnum. Lóð er grófjöfnuð með mulningi í bílastæði og ruslaskýli á lóð.

Fyrir nánari upplýsingar veitir Jón G. Sandholt, löggiltur fasteignasali, í síma 777-2288 eða jon@helgafellfasteignasala.is.

Skipulag samkvæmt teikningu

Anddyri – 5,8 fm
Komið er inn í anddyri með fataskáp.
Stofa / eldhús / alrými – 48,6 fm
Mjög rúmgott og opið alrými með góðu plássi fyrir stofu og borðstofu. Eldhús er með innréttingu og eyju.
Hjónaherbergi – 17,9 fm
Rúmgott hjónaherbergi með góðu skápaplássi.
Svefnherbergi I – 10,2 fm
Svefnherbergi II – 11,5 fm

Baðherbergi – 7,2 fm
Þvottahús – 4,3 fm
Bílskúr – 31 fm
Innangengt er í bílskúr frá anddyri. Bílskúrshurð með opnara.

Frágangur að utan
  • Báruálklæðning á veggjum í lit 9005
  • Þak klætt ólituðu aluzink
  • Álrennur
  • Slétt álklæðning á þakkanti
  • Bandsöguð timburklæðning máluð svört neðan í kanti
  • Timbur/ál gluggar og hurðir í lit 9005
  • Tvöfalt gler
  • Lóð grófjöfnuð
  • Mulningur í bílastæði
  • Ruslaskýli á lóð
Frágangur að innan
  • Veggir klæddir með gipsi á spónaplötum/OSB
  • Loftaþiljur hvítar með loftlistum
  • Upptekið loft í hluta hússins
  • Gólfhiti ísteyptur í gólfplötu
  • Loftskiptikerfi frá Íshúsinu með útsogi úr votrýmum og innblæstri í önnur rými
  • Innréttingar frá IKEA eða sambærilegu í eldhúsi, þvottahúsi og á baði
  • Hvítar innihurðir frá Birgisson með stálhúnum
  • Harðparket á gólfum
  • Flísalagt baðherbergi og þvottahús (60x60 flísar)
  • Flísalagðir veggir við sturtu
  • Handklæðaofn á baðherbergi
Hreinlætistæki og annað
  • Hreinlætistæki frá Hans Grohe eða sambærilegu
  • Innbyggt salerni
  • Krómuð blöndunartæki
  • Eldhústæki frá AEG: bakaraofn og 60 cm helluborð
Lýsing og málning
  • Húsið málað að innan í einum lit að vali kaupenda
  • Innbyggð ljós frágengin
  • Útiljós í þakkanti

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hafnarbraut 10a - 102
Opið hús:30. júní kl 17:00-17:30
VRayCam004.jpg
Hafnarbraut 10a - 102
200 Kópavogur
128.2 m2
Fjölbýlishús
413
913 þ.kr./m2
116.990.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 1 - íbúð 501
Valshlíð 1 - íbúð 501
102 Reykjavík
106.8 m2
Fjölbýlishús
312
1226 þ.kr./m2
130.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 10b
Opið hús:30. júní kl 17:00-17:30
garden.jpg
Skoða eignina Hafnarbraut 10b
Hafnarbraut 10b
200 Kópavogur
127.1 m2
Fjölbýlishús
423
936 þ.kr./m2
118.990.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 10b
Opið hús:30. júní kl 17:00-17:30
garden.jpg
Skoða eignina Hafnarbraut 10b
Hafnarbraut 10b
200 Kópavogur
114.3 m2
Fjölbýlishús
322
945 þ.kr./m2
107.990.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin