BYR fasteignasala kynnir DALAHRAUN 15D, íbúð 202, í Hveragerði í einkasölu. Vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á efri hæð með sérinngangi í nýju hverfi sem kallast Kambaland.
Stutt er í alla almenna þjónustu og útivistarsvæði, Ýtið hér fyrir staðsetningu.
Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymsla. Í sameign er hjóla- og vagnageymsla.Skráning eignarinnar hjá Þjóðskrá Íslands:
Stærð: 63,4 m²
Brunabótamat: 34.300.000 kr.
Fasteignamat: 36.900.000 kr.
Byggingarár: 2021
Byggingarefni: Steypa
Nánar um eignina:
Anddyri með tvöföldum fataskáp.
Alrými með stofu og eldhúsi. Útgengt er út frá stofu á suður svalir.
Eldhús með Electrolux keramik span helluborð og Electrolux ofni, gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Tvö
svefnherbergi, hjónaherbergi með þreföldum fataskáp og barnaherbergi með einföldum
fataskáp.
Baðherbergi með vaskinnréttingu, vegghengt salerni, sturta og handklæðaofn, sturtuhorn er flísalagt. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi.
Geymsla er í sameign á jarðhæð, ásamt sameigninlegri vagna- og hjólageymslu.
Gólfefni; Málað gólf er á alrými, svefnherbergjum og anddyri. Flísar eru á baðherbergi.
Húsið er hannað af Nordic-Office of Architecture (áður Arkþing ehf) sem er mjög reynslumikil stofa sem hefur hannað mikið af eftirtektarverðum húsum á Íslandi. Dalahraun 15 er fimm íbúða steinsteypt tvílyft hús, einangrað og klætt að utan með álklæðningu. Þak er viðsnúið þak, steypt með halla með tvöföldu lagi af eldsoðnum tjörutappa. Á jarðhæð eru tvær íbúðir geymslur og hjóla- /vagnageymsla. Á efri hæð eru þrjár íbúðir. Á lóðinni eru tíu bílastæði, þar af eitt sér merkt stæði fyrir hreyfihamlaða. Snjóbræðsla er í gangstétt fyrir framan hús í þeim hluta gönguleiða sem er hellulögð. Lóð er þökulögð.