Gvendargeisli 80, íbúð 101, 113 Reykjavík er rúmgóð 3ja herbergja íbúð með sérinngangi á 1. hæð í góðu fjölbýlishúsi í Grafarholtinu. Um að ræða 113,1 fermetra eign sem skiptist í 107,8 fermetra íbúð og 5,3 fermetra geymslu. Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, rúmgóða stofu/borðstofu, baðherbergi, tvö svefnherbergi, þvottahús og sérgeymslu í sameign. Úr alrými er gengið út á afgirta verönd sem snýr til suðurs. Eigninni fylgir sérmerkt stæði í lokaðri bílageymslu og búið er að koma fyrir sameiginlegum hleðslustöðvum á bílastæði fyrir framan hús.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 113,1 fm, þar af er geymsla 5,3 fm
Nánari lýsing
Forstofa: Gengið er inn í rúmgóða forstofu með góðum fataskáp og flísum á gólfi. Innangengt er í þvottahús frá forstofu.
Eldhús: Með viðarinnréttingu og góðu skápaplássi. Parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð með útgengi á verönd til suðurs. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi: Með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi: Með upphengdu salerni og baðkari. Flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús: Rúmgott þvottahús innan íbúðar með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Gott vinnupláss og vaskur. 4 fm geymslurými inn af þvottahúsi.
Geymsla: 4 fm geymsla inn af þvottahúsi og 5,3 fm sérgeymsla í sameign inn af bílakjallara.
Verönd: Afgirtur sérafnotareitur til suðurs.
Bílskýli: Sérmerkt stæði í lokuðum bílakjallara.
Lóðin: Snyrtileg og vel hirt lóð sem er sameiginleg með húsinu.
Að íbúðinni er aðgengi fyrir hjólastól og eitt stæði fyrir fatlaða er fyrir framan húsið.
Frábært tækifæri til að eignast íbúð á góðum og fjölskylduvænum stað í Grafarholtinu. Stutt í leikskóla, grunnskóla og fallegar gönguleiðir nálægt Reynisvatni.
- - -
Allar nánari upplýsingar veita Ásgeir Þór löggiltur fasteignasali á netfangið asgeir@procura.is og Oddný María aðstoðarmaður fasteignasala á netfangið oddny@procura.is eða í síma 497-7700
- - -
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum og hvetjum við væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Kostnaður kaupanda vegna kaupa á þessari eign er stimpilgjald kaupsamnings, 0,4% af fasteignamati fyrir fyrstu kaupendur, 0,8% fyrir aðra einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjöld eru 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
Kynntu þér
fasteignaþjónustu Procura og
nýja þjónustu okkar við leit að fasteign fyrir þig.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.