OPIÐ HÚS FIMMTUDAGINN 26. JANÚAR KL.12.00-12.45 OG 17.00-17.30
Vernharð Þorleifsson lgf. og REMAX kynna fallega 2ja herbergja íbúð á jarðhæð með séreignareiti, í Austurbergi 18, Reykjavík.-Eignin er skráð skv. Þjóðskra 48,3 fm
-Sér lokaður lítill garður - snýr í suður
-Sér inngangur er um garðinn, inn í íbúðina
-Þvottahús í sameign með vélum
-Stutt í alla þjónustu
Eignin skiptist í: Forstofuhol, svefnherbergi, baðherbergi, eldhús/stofu og geymslu.
Þvottahús og hjólageymsla í sameign.
Nánari lýsing:
Forstofuhol: Af stigagangi er gengið inn á parketlagt forstofuhol. Af því er gengið inn í aðrar vistarverur eignarinnar.
Eldhús: Opnað hefur verið á milli eldhúss og stofu sem gefur rýminu gott birtuflæði. Parketlagt með ljósri innréttingu á vegg og lausu vinnuborði sem skilur að eldhús/stofu.
Stofa: Parketlögð og með stórum gluggum. Gengið er út í garð sem er séreign þessarar eignar.
Svefnherbergi: Parketlagt, með fataskáp á heilum vegg.
Baðherbergi: Flísaar á gólfi, vaskinnrétting og baðkar með sturtu.
Sér geymsla: Í sameign með hillum.
Sameiginlegt þvottahús í kjallara með vélum. Snyrtilegt með lökkuðu gólfi
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla
Raflagnir í íbúðinni voru endurnýjaðar 2015-2016Stigagangur er teppalagður. Útgengt á baklóð frá stigagangi í gegnum hjólageymslu.
Lóðin er sameiginleg.
Frekari upplýsingar veitir Vernharð Þorleifsson löggiltur fasteignasali í síma 699-7372 eða venni@remax.isKíktu í heimsókn til mín á Facebook eða
á InstagramGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.