Heimili fasteignasala kynnir til sölu glæsilegar nýjar íbúðir í vönduðuð lyftuhúsi við Hraungötu 19 í Urriðaholti í Garðabæ.
Sýnum daglega, bókið einkaskoðun.
Mjög traustur byggingaraðili Mótx ehf. þar sem lögð er áhersla á fagmennsku og lipurð. Mótx ehf. er eitt af umsvifamestu fyrirtækjunum landsins í byggingageiranum og hafa m.a. fengið verðlaun fyrir vandaðan og metnaðarfullan frágang. Mótx ehf. er umhverfisvænt fyrirtæki þar sem áhersla er lögð á grænar lausnir og umhverfisvæn verkefni.
Íbúð 03-03 er 2ja. herbergja íbúð á 3. hæð. Birt stærð er 65,9 fm. Íbúðin er 60,4 fm. að stærð og henni fylgir 5,5 fm. geymsla merkt 0108. Heimasíðu verkefnisins má finna hér. GLÆSILEGT ÚTSÝNI
Komið er inn í forstofugang með fataskáp. Opið rými sem er eldhús, stofa og borðstofa. Eldhús með fallegri innréttingu og útgengt út á góðar suðursvalir úr stofunni. Stórt hjónaherbergi með fataskápum. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, innrétting og sturta sem gengið er inní. Þvottahús með flísum á gólfi og skolvask.
Urriðaholt er einstaklega vel staðsett þar sem náttúran umlykur hverfið á þrjá vegu. Frábær útivistarsvæði í göngufæri og barnvæn leiksvæði. Stutt er í úrval verslanna og þjónustu í Kauptúni. Skipulag Urriðaholts hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir gott samspil við náttúruna fyrir þar sem áhersla á lífsgæði er í fyrirrúmi. Frekari upplýsingar um Urriðaholt má finna
hér.
Stutt lýsing á Hraungötu 19.
Húsið er 13 íbúða vandað lyftuhús, hannað af Kristni Ragnarssyni arkitekt, KRark. Allar íbúðir eru með svölum eða verönd og margar með fallegu útsýni. Þær eru afhentar fullbúnar, en án gólfefna nema á votrýmum. Frístandandi sér loftræsting er í flestum íbúðum sem eykur mjög lífsgæði. Bílastæðakjallari er undir húsinu og fylgir flestum íbúðunum sér stæði. Sameiginleg bílastæði á lóðinni. Einnig er sameiginleg hjólageymsla. Afhending verður í lok September 2022.
Allar frekari upplýsingar veitir Gunnlaugur A. Björnsson, gab@heimili.is 617 5161
Eldhúsinnrétting er sérsmíðuð af vandaðri gerð frá Axis ásamt vaski og Grohe blöndunartækjum frá Byko. Helluborð, blástursofn og gufugleypir eru af gerðinni AEG frá Ormsson. Allir fataskápar og baðinnréttingar eru sérsmíðaðar frá Axis. Innfelld LED lýsing í loftum. Baðherbergi og þvottahús eru flísalögð með 60x40 cm flísum á gólfi og veggir að hluta upp í loft. Svalahandrið úr gleri.
Í íbúðunum er sjálfstætt loftskiptikerfi sem stuðlar að heilbrigði húss og íbúa, auk orkusparnaðar. Kerfið er með varmaendurvinnslu og endurnýtir við bestu aðstæður 80% af varmanum. Í því eru vandaðar loftsíur sem sía allt loft sem kemur inn. Ekki á því að vera þörf á að opna glugga í íbúðunum til loftunnar.
Innimyndir á samfélagsmiðlum eru úr sýningaríbúð fyrir verkefnið. Innréttingar og skápar eru breytilegir eftir íbúðum en útlit og tæki eru samskonar. Endanleg skil íbúða miðast við skilalýsingu eignarinnar, en þar eru nákvæmar upplýsingar um eignina. 3D myndir eru til að gefa kaupendum vísbendingu um endanlegt útlit. Allar fermetratölur íbúða eru birtar með fyrirvara. Eignaskiptayfirlýsing gildir.
HEIMASÍÐA VERKEFNIS
hraungatan.is/heimili
Allar frekari upplýsingar veitir Gunnlaugur A. Björnsson, gab@heimili.is 617 5161