RE/MAX Senter kynnir bjarta og vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á 3. hæð að Snorrabraut 33A í miðbæ Reykjavíkur.
Í miðbænum er að finna Sundhöll Reykjavíkur, veitingastaði, verslanir, skemmtistaði, leikskóla, grunnskóla og skóla á háskólastigi. Allt í 5 mínútna göngufæri.Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi, svefnherbergi og geymslu. Eignin er skráð hjá Þjóðskrá Íslands 68,3 m2.Söluyfirlit má nálgast hérNánari lýsing:Forstofa er inn af sameiginlegum dúklögðum stigagangi. Innan íbúðar er komið inn á parketlagt hol og flæðir það um öll rými eignarinnar nema baðherbergi. Hvítur laus fataskápur fyrir yfirhafnir. Í forstofuholi er einnig kústaskápur.
Stofa er björt með gluggum til norðvesturs út að Snorrabraut. Parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Gráar flísar á gólfi og upp baðkar. Ljósar flísar á veggjum. Salerni, tvær viðar skápaeiningar við handlaug og baðkar með sturtuhengi. Veggfestur spegill.
Herbergi er einstaklega stórt, með hvítum skáp sem fyllir einn vegg. Í einu skotinu er innfellt borð sem getur nýst sem skrifstofurými. Útgengi er út á SA-svalir. Parket á gólfi.
Eldhús er með hvítri háglans innréttingu á tveimur veggjum. Viðarborðplata, keramikhelluborð og bakaraofn. Stæði og tengi fyrir uppþvottavél. Gluggi snýr út í garð og blasa við iðagræn tré. Pláss fyrir nett borð og 2-3 stóla. Parket á gólfi.
Geymsla er sér í sameign í kjallara. Stærð: 6,9 m2.
Þvottahús er í sameign í kjallara. Mjög snyrtilegt og að auki er sér þurrkherbergi. Gestasalerni er sameiginlegt.
Lóð er gróin aftan við hús, há tré og grasflötur. Hellulögð gangstétt framan við hús.
Bílastæði eru í götunni. Gjaldskylda, en hægt er að sækja um íbúakort. Nánar um það
hér.Fasteignamat 2023: 45.500.000 kr.
Húsfélagið á rými í kjallara sem er leigt út og ganga tekjur af því í hússjóð.
Innifalið í húsfélagsgjaldi er allur hitakostnaður, allt rafmagn í sameign, húseigendatrygging og almennur rekstur. Íbúar hafa skipt með sér þrifum á sameign.
Fyrir þremur árum voru skólplagnir endurnýjaðar undir húsi og út í brunn. Engar framkvæmdir eru fyrirhugaðar hjá húsfélaginu, en næst væri að skoða ástand á þaki sem var yfirfarið fyrir 7 árum síðan. Einnig þarf að skoða fljótlega ástand á gluggum í stigagangi.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is
-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Stimpilgjald af veðskuldabréfi - 0% af höfuðstól skuldabréfs.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.000 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnana.