ALLT fasteignasala sími
560-5500 kynnir Hörgsholt 11, íbúð á jarðhæð í tvíbýlishúsi með sér inngangi ásamt bílskúr.
Eignin skiptist í forstofu, gang, þvottahús, stofu og eldhús sem er stúkað frá með léttum vegg. Tvö svefnherbergi. Búið er að opna úr öðru herberginu inn í bílskúr og er þar stúkað af annað herbergi. Bílskúr er í dag sem geymsla með inngangshurð á hlið húss.
Nánari lýsing:Aðkoma: hellulagt bílastæði, lóð tyrfð
Forstofa með opnum skáp
Þvottahús með lökkuðu golfi
Stofa og eldhús í sama rými, parket nýlega slípað og lakkað. Stofan er björt með flottu útsýni.
Eldhús með lakkaðri innréttingu, ný slípað parket. Uppvöskunarvél og ísskápur getur fylgt með.
Baðherbergi með baðkari ásamt sturtuhengi. Flísar á gólfi ásamt á veggjum við bað. Flísalagt gólf, hvít innrétting með vask og fínu skápaplássi.
Tvö svefnherbergi, með nýlega slípuðu parketi. Geymsla er við hjónaherbergi sem hægt er að breyta í fataherbergi. Inn af hjónaherbergi er búið að opna inn í bílskúr og
útbúa þar herbergi á hlut bílskúrs.Bílskúr er í dag stúkaður niður í geymslu og herbergi með inngönguhurð á hlið.
Staðsetning eignarinnar er góð með fallegu útsýni. Eignin er í botnlanga sem að mestu eru einbýlishús. Stutt á golfvöll, skóla og leikskóla.
Nánari upplýsingar og skoðunarbókanir veitir:
Bjarklind Þór, Löggiltur fasteignasali
bjarklind@allt.is, 560-5513
Páll Þorbjörnsson, Löggiltur fasteignasali
pall@allt.is, 560-5501ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Víkurbraut 62, 240 Grindavík - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Kostnaður kaupanda: Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.500.
Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 50.000 auk vsk.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir, er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.