*** EIGNIN ER SELD OG ER Í FJÁRMÖGNUNARFERLI ***
Góður áhugi var fyrir eigninni.
Ef þú ert með sambærilega eign og hefur áhuga að að fá verðmat þér að kostnaðarlausu smelltu þá HÉR
Ef þú ert að leita að framtíðareign og vilt vera á lista fyrir sambærilegar eignir smelltu þá HÉR_______________________________
RE/MAX & HERA BJÖRK Lgf. kynna:
Falleg 4ra herbergja útsýnisíbúð á 4. hæð (efstu) í lyftublokk með sérinngangi af svölum og sérmerktu stæði í bílageymslu á Burknavöllum 17a í Hafnarfirði.
Eignin er samtals 105,3 m² og samanstendur af forstofu, eldhúsi, alrými (stofu/borðstofu), þrem góðum svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi & 2 geymslum. Auk þess er 6 m² svalir og bílastæði í bílakjallara.
Lýsing eignar:
Forstofa: Flísar á gólfi.
Gangur/hol: Góður fataskápur og parket á gólfum.
Eldhús: Með fallegu útsýni til fjalla, viðar innrétting með svartri granítborðplötu. Nýlega voru eldavél, ofn og uppþvottavél endunýjuð. Flísar á gólfi.
Stofa og borðstofa: Opið og rúmgott rými, einnig með fallegu útsýni og útgengi út á suður svalir. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Bjart með rúmgóðum fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi I : rúmgott með fataskáp, parket á gólfi.
Svefnherbergi II: Einnig rúmgott með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með sturtuaðstöðu, góð viðar innréttingu með vaski.
Þvottahús: er inn af baðherbergi með innréttingu og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.
Geymsla: er innan íbúðar og einnig fylgir 4,3 fm sérgeymsla í sameign sem og sameiginleg vagna og hjólageymsla.
Stæði í bílakjallara: Sérmerkt stæði nr. B19 fylgir eigninni.
Vel staðsett íbúð í góðu fjölbýlishúsi á fjölskylduvænum stað á Völlunum í Hafnarfirði með einstöku útsýni til fjalla.
Stutt í alla helstu þjónustu og gott göngufæri í leik- og grunnskóla, matvöruverslanir, íþróttastarf og sundlaug.
Viðhald innan og utan á undanförnum árum:
Sjá yfirlýsingar húsfélaga á opnu húsi.
Í 3D getur þú skoðað eignina hvar sem þú ert í þrívíðu umhverfi, ferðast auðveldlega á milli herbergja og kynnt þér rýmið. Allar nánari upplýsingar veitir Hera Björk, löggiltur fasteignasali í síma 774-1477 á milli kl. 10:00 og 17:00 alla virka daga eða á netfanginu
herabjork@remax.is Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasala Reykjavíkur því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.500 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 59.900 kr. m.vsk
_________________________________
Ertu í fasteignahugleiðingum?Ég hef starfað við Fasteignasölu frá janúar 2017 þegar ég ákvað að venda mínu kvæði í kross og hefja störf sem fasteignasali.
Ég legg mig fram um að veita persónulega og góða þjónustu, viðhalda góðu upplýsingaflæði og vanda vinnubrögð fyrir seljendur og kaupendur. Hjá mér færðu frítt sölumat og upplýsingar um ferlið án allra skuldbindinga.
Hafðu samband í dag í síma: 774-1477 eða á netfangið herabjork@remax.is