Eignatorg kynnir: Opið hús Háengi 2, íbúð 302 fimmtudaginn 30. júní milli kl. 19:00 og 19:30.
Nýtt á skrá - Falleg, björt og rúmgóð 2ja - 3ja herbergja íbúð á þriðju og efstu hæð í góðu fjölbýli.
Skv. skráningu Þjóðskrár er íbúðin 68,2 fm og sérgeymsla í kjallara 6,6 fm. Samtals er eignin því skráð 74,8 fm.
Nánari lýsing: Forstofa með flísum á gólfi og forstofuskápum. Stofa með harðparketi á gólfi, gluggum til vesturs og hurð út á vestursvalir. Aðgengilegt væri að stúka af svefnherbergi frá stofurými. Eldhús með harðparketi á gólfi, fallegri, eldri innréttingu og borðkrók. Gert er ráð fyrir mjórri uppþvottavél í innréttingu. Hjónaherbergi með harðparketi á gólfi og klæðaskápum. Endurnýjað baðherbergi með flísum á gólfi, flísum á veggjum, innréttingu, baðkari, handklæðaofni og tengi fyrir þvottavél.
Á milli 2. og 3. hæðar er sameiginlegt þvottahús.
Góð sérgeymsla og sameiginleg hjólageymsla er í kjallara.
Allar nánari upplýsingar veitir Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteignasali í síma 510-3500 / 615-1020 eða bjorgvin@eignatorg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 0 - 90.000.-. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. Þjónustusamning.