Eldhús er með fallegri L-laga innrétting frá Voke3 með AEG tækjum. Í innréttingu er innbyggður ísskápur og uppþvottavél. LED lýsing er undir efri skápum. Skúffur eru í neðri hluta innréttingar og skápar í efri hluta innréttingar. Í innréttingu er AEG blástursofn, spansuðuhelluborð ásamt viftu.
Baðherbergi er með baðinnréttingu, skáp, handklæðaofn, vegghengdu salerni og sturtu. Sturta er flísalögð og með sturtuskilrúmi úr hertu gleri á eina hlið.
Þvottaherbergi er inn af baðherbergi. Í innréttingu undir þvottavél og þurrkara er útdraganleg skúffa fyrir þvottinn sem auðveldar að ganga um vélarnar.
Svefnherbergi eru tvö með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Stofan er með gott sjónvarpshol sem hægt er að breyta í auka svefnherbergi. Úr stofu er gengið út á rúmgóðar svalir í suðvesturátt
Bílskúr er með epoxý á gólfi og skolvaski. Rafdrifinn hurðaropnari er á bílskúrshurð.
Sameign: Íbúðinni fylgir hlutdeild í sameiginlegri vagna- og hjólageymslu. Bílastæði við húsið eru malbikuð og gönguleið að húsi hellulögð með snjóbræðslu. Búið er að setja upp dokkur frá ON og því einfalt fyrir íbúa að setja upp hleðslustöðvar. Lóð verður frágengin fyrir afsal eignarinnar
Mjög fallegt og vel skipulagt fjölbýlishús á þremur hæðum við Liljugötu 4 í Mosfellsbæ. Húsið er teiknað af Teiknistofu Ingimundar Sveinssonar. Hönnun íbúðanna er vel heppnuð, allar 3-4ra herbergja íbúðirnar eru endaíbúðir. Inngangur er af opnum svalagangi og gluggar eru því á öllum fjórum hliðum íbúðanna sem gerir þær mjög bjartar. Tveggja herbergja íbúðirnar eru sömuleiðis mjög vel skipulagðar, gluggar eru á tveimur hliðum. Svalir á öllum íbúðum efri hæðar eru mjög stórar eða rúmir 15 m2. Jarðhæðum fylgir sérafnotarréttur af lóð. Húsið er byggt af Byggingafélaginu Bakka ehf sem er fjölskyldufyrirtæki með 40 ára reynslu af byggingu íbúðarhúsa. Allar íbúðirnar afhendast fullbúnar með vönduðum innréttingum frá Voke3, gólfefnum og hvítum yfirfelldum innihurðum Birgissyni ehf, hreinlætis og blöndunartækjum frá Tengi ehf. Innihurðir eru með felliþröskuldi nema á baðherbergi. Skv. samþykktum bygginganefndateikningum þá er búið að fá samþykki fyrir svalalokunum á öllum íbúðum í húsinu. Íbúðirnar eru afhentar án svalalokana og eru kaupendur hvattir til að kynna sér vel skilmála svala og verandalokana, áður en þeir taka ákvörðun um að fara í þá framkvæmd. Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á (0,3% af endanlegu brunabótamati).
Verð kr. 86.900.000,-
Allar nánari upplýsingar fást hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar í síma 586 8080.
Einnig er hægt að ná í Svanþór í síma 698-8555, svanthor@fastmos.is,Sigurð í síma 899-1987, sigurdur@fastmos.is og Theodór í síma 690-8040, teddi@fastmos.is
Fasteignasala Mosfellsbæjar, Þverholti 2, Mosfellbæ. Opið frá kl. 9-17 alla virka daga
Heimasíða Fasteignasölu Mosfelsbæjar
Fasteignasala Mosfellsbæjar á Facebook
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
270 | 140.6 | 86,9 | ||
270 | 140.6 | 87,9 | ||
270 | 140.6 | 87,9 |