Alda fasteignasala kynnir í einkasölu : Fallega 4ja herbergja endaíbúð á annari hæð með bílskúr í góðu fjölbýli í fjölskylduvænu hverfi í Breiðholti.
Eign með glæsilegu útsýni til austurs. Nýleg eldhúsinnrétting og bílskúr með rafmagni, hita og vatni.
Birt stærð eignar samkvæmt Þjóðskrá Íslands er 111,3 fm, íbúðarými 89,4 fm og bílskúr 21,9 fm. Geymsla í sameign er u.m.þ.b. 5,3 fm.
Nánari upplýsingar veita Hafþór Örn, löggiltur fasteignasali, S: 699-4040, hafthor@aldafasteignasala.is. og Páll Konráð, löggiltur fasteignasali, í síma 820-9322, pall@aldafasteignasala.is.
Fyrirhugað fasteignamat 2023: 52.650.000 kr.
Eignin skiptist í: Forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu, bílskúr og sérgeymslu í sameign
Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inní rúmgóða forstofu og gang af sameiginlegum inngangi með góðu skápaplássi. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi I: Bjart með harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi II: Bjart með fataskáp, harðparket á gólfi.
Hjónaherbergi: Er rúmgott með góðu skápaplássi og gengið er útá vestursvalir sem eru fram með allri íbúðinni. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Er flísum á veggjum og gólfi, baðkar með sturtu.
Stofa: Er björt og rúmgóð með glæsilegu útsýni til austurs.
Eldhús:Er með nýlegri eldhúsinnréttingu og góðum borðkrók, innbyggðri uppþvottavél og innbyggðum örbylgjuofni sem munu fylgja með. Harðparket á gólfi.
Bílskúr: Er með rafmagni, hita og vatni og rafmagnsopnun.
Geymsla: Er á jarðhæð í sameign.
Sameiginlegt þvottahús: Er á jarðhæð.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla: Er á jarðhæð
Um er að ræða mjög góða fjögurra herbergja íbúð á grónum og góðum stað í Breiðholti.
Stutt í Elliðarárdalinn og Árbæjarlaugina.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Hafþór Örn, Löggiltur fasteignasali, sími 699-4040, hafthor@aldafasteignasala.is
Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali, sími 820-9322, pall@aldafasteignasala.is
Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.000 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALDA fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.