Domusnova kynnir vel staðsett geymslu- eða lagerrrými við Borgahellu 15 (4 bil), Hafnarfirði. Birt stærð 42,4fm hvert bil með möguleika á 13,8fm millilofti.Nýtt glæsilegt atvinnu-frístunda- og/eða hobbý rými til sölu á malbikaðri afgirtri lóð (öryggisgirðing) með lokuðu rafstýrðu hliði og öryggismyndavélum við Borgahellu 13, Hafnarfirði. Samtals eru 38 bil á sameiginlegri lóð og hvert bil um 42,4fm. að stærð. Breidd húsnæðis 4,6fm. og lengd 9,23fm. Möguleiki á millilofti í hvert bil allt að 13,8fm.
Fasteignin er byggð úr límtré ásamt burðarvirki þess.
Þak og útveggir eru klæddir með vottuðum stá-samlokueinignum frá Límtré/Vírnet með harðpressaðri steinull.
Bilin afhendast fullfrágengin utan sem innan (byggingastig 7) með sérstæði fyrir framan hvert bil.
Vegghæð við útvegg er 3,5 metrar og 4,7 metrar innst í hverju bili
Innkeyrsludyr eru 3,0m x 2,5m
Inngöngudyr við hlið innkeyrsludyra og gluggi fyrir ofan inngöngudyr. Á endabilum eru gluggar á gafli.
Gólf afhendast vélslípuð og máluð þ.m.t. í sameiginlegu inntaksrými og salerni.
Skolvaskur og blöndunartæki verða uppsett í hverju bili.
Skolprör í gólfi á hverju bili sem gefur möguleika á uppsetningu fyrir klósett í hvert bil.
Niðurfall í gólfum.
Hitaveita verður sameiginleg fyrir öll geymslurýmin og er húsnæðið hitað upp með hefðbundnu ofnakerfi. Varmaskiptir er við inntak heita vatnsins. Inntök húsa eru öll staðsett við enda húss nr. 1 Lögnum verður skilað tilbúnum til tengingar fyrir salernisaðstöðu.
Áætlaður afhendingartími er í september 2022.
Rafmagnsmótor á innkeyrsluhurð með fjarstýringu.
Raflögn verður frágengin með 3ja fasa rafmagni og rafmagstöflu fyrir hvert bil. Lýsing í loftum frágengin.
Lóð skilast fullfrágengin, malbikuð með niðurföllum, girt af og með sjálfvirku rennihliði með fjarstýringu tengt símanúmerum eigenda á hverju innnkeyrslubili.
Útilýsing frágengin fyrir ofan innkeyrsluhurðar hvers geymslubils tengd sólúri eða sambærilegt og tengd sameiginlegum rafmagnsmæli.
Sorptunnugeymsla er á lóð næst hliði. Sameiginleg salernisaðstaða frágengin með klósetti í mhl. 01 ásamt inntaksrými. Sameiginleg bílastæði á lóð eru 17 og þar af 3 fyrir hreyfihamlaða . Hægt verður að koma upp rafhleðslustöð á bílastæði (ídráttarrör).
HÚSFÉLAG er stofnað fyrir alla verðandi eigendur að bilum á þessari lóð til að tryggja m.a. góða umgengni um lóð og hús.
Eignarhlutarnir eru skilgreindir með eftirfarandi hætti í eignaskiptayfirlýsingu fyrir heildareignina:
Eign.....................Matshluti:...Fasteignanúmer:...Birt stærðBorgahella 15T.....02-0112........251-9218............42,4 fm.
Borgahella 15S.....02-0113........251-9219............42,4 fm.
Borgahella 15R.....02-0114........251-9220............42,4 fm.
Borgahella 15P.....02-0115........251-9221............42,4 fm.Nánari upplýsingar veita:Árni Helgason fasteignasali / s.6634290 / arni@domusnova.isSkrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.