AÐEINS 2 BIL EFTIR
Domusnova kynnir í sölu 35 fm lagerhúsnæði við Borgahellu 21 - Þetta hentar fyrir allskonar rekstur eða einstaklinga.
Eignin er til afhendingar í ágúst - septmber 2022.Nýtt glæsilegt atvinnu-frístunda- og/eða hobbý rými til sölu á malbikaðri afgirtri lóð með lokuðu rafstýrðu hliði og öryggismyndavélum við Borgarhellu 21, Hafnarfirði.
Möguleiki á milligólfi í hvert bil.
Fasteignin er byggð úr límtré ásamt burðarvirki þess.
Þak og útveggir eru klæddir með vottuðum stál samlokueinignum frá Límtré/Vírnet með harðpressaðri steinull.
Bilin afhendast fullfrágengin utan sem innan (byggingastig 7) með sérstæði fyrir framan hvert bil.
Vegghæð við útvegg er 3,5 metrar og 4,7 metrar innst í hverju bili.
Innkeyrsluhurð 3,0 x 2,5m.
Gólf afhendast vélslípuð og máluð.
Skolvaskur og blöndunartæki verða uppsett í hverju bili.
Niðurfall í gólfum.
Hitaveita verður sameiginleg fyrir öll geymslurýmin og er húsnæðið hitað upp með hefðbundnu ofnakerfi. Varmaskiptir er við inntak heita vatnsins.
Lögnum verður skilað tilbúnum fyrir salernisaðstöðu tilbúnum til tengingar.
Rafmagnsmótor á innkeyrsluhurð með fjarstýringu. Innkeyrsluhurð er 3 metra há og inngönguhurð við hlið hennar fyrir hvert bil.
Raflögn verður frágengin með 3ja fasa rafmagni og rafmagstöflu fyrir hvert bil. Lýsing í loftum frágengin.
Lóð skilast fullfrágengin, malbikuð, girt af og með sjálfvirku rennihliði með fjarstýringu. Sorptunnugeymsla er á lóð. Sameiginlegt salernisaðstaða í mhl.01 ásamt inntaksrými. Bílastæði á lóð eru 18 og þar af 3 fyrir hreyfihamlaða . Hægt verður að koma upp rafhleðslustöð á bílastæði.
HÚSFÉLAG er stofnað fyrir alla verðandi eigendur að bilum á þessari lóð til að tryggja m.a. góða umgengni um lóð og hús.
Eignarhluti merktur 02-0116 í húsinu Borgahella 21 O 221 Hafnarfirði.
Eignarhlutinn er skilgreindur með eftirfarandi hætti í eignaskiptayfirlýsingu fyrir heildareignina:
Eign:...................Matshluti:...Fasteignanúmer:..Birt stærð:
Borgahella 21 O....02-0116......251-6753................35 fm.
Nánari upplýsingar veita:Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Óskar Már Alfreðsson löggiltur fasteignasali / s.6158200 / oskar@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.