Höfði fasteignasala kynnir:
Íbúðin er SELD - Með fyrirvara!
Virkilega glæsileg, björt, rúmgóð og einstaklega vel skipulögð 4ra herbergja neðri sérhæð í endahúsi, innst í botnlanga á þessum vinsæla stað í Norðlingaholti.
Samkvæmt skráningu Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 121,3 fm.
Fyrirhugað fasteignamat 2023 er kr. 78.950.000,-
Um er að ræða neðri sérhæð í tveggja hæða fjöleignarhúsi sem samanstendur af 10 íbúðum og fimm bílskúrum í Lækjarvaði 16-24 byggt árið 2008.
Gengið er inn í forstofu, úr henni er gengið inn gang með fram svefnherbergjum og til hægri að sjónvarpsholi. Baðherbergið er á ganginum á móts við holið. Rúmgóð stofa ásamt borðstofu sem eru opnar í glæsilegt eldhús með eyju. Útgent er úr stofu út á rúmgóða verönd til suð-vesturs með skjólveggjum úr stofunni. Lítil geymsla er á ganginum og sér geymsla íbúðarinnar er beint á móti inngangi íbúðarinnar.
Forstofa: Parket á gólfi og góður fataskápur.
Svefnherbergisgangur: Parket á gólfi og lítil geymsla sem er undir stigagangi efri hæðar.
Baðherbergi: Flísalagt gólf og veggir, stór flísalögð walk-in sturta, innrétting með ljúflokunum á skúffum og spegli með fallegri lýsingu og upphengt salerni.
Eldhús: Glæsileg hvítlökkuð innrétting og gott borðpláss, tvöfaldur ísskápur og uppþvottavél í innréttingu, stór eyja með stóru span helluborði og skúffum, parket á gólfi.
Stofa/borðstofa: Opið rúmgott rými með eldhúsi með parketi á gólfi og útgengt á rúmgóða verönd með skjólveggjum og útigeymnslu.
Sjónvarpshol: Parket á gólfi og opið í stofuna.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott, sérsmíðaður fataskápur og parket á gólfi.
Tvö barnaherbergi: Sérsmíðaðir fataskápar og parket á gólfum.
Þvottahús: Inn af baðherberginu með flísalögðu gólfi, gott skipulag með góðu skápaplássi.
Geymsla: Skráð 4,1 fm beint á móti aðalinngangi með góðum hillum, önnur geymsla er innan íbúðar og ekki inn í fermetratölu.
- Gólfhiti er í allri íbúðinni.
- Gert er ráð fyrir arni, strompur til staðar.
- Falleg Halogen lýsing er í stofum og gangi.
- Gott aðgengi að bílastæðum.
- Dregið í fyrir rafhleðslustöð við sér bílastæði.
- Sér afnotaréttur af lóðarparti framan við stofu og eldhús með sólverönd, skráður 34 fm.
Virkilega glæsileg eign í barnvænu hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu og Heiðmörk með öllum sínum útivistarmöguleikum rétt við hendina.
Allar nánari uppl. og skoðun veitir: Jóhann Friðgeir, lgf.
GSM: 896-3038 e-mail: johann@hofdi.is