Fold fasteignasala kynnir í sölu:
Bókið skoðun í síma 899-5209, hordur@fold.is ,Hörður Sverrisson, lgf
Túngata 27
Fallegt 182,3 fm einbýlishús á tveimur hæðum við Túngötu á Siglufirði.
Húsið er með 4-5 svefnhergjum og hentar vel fjölskyldufólki.
Um er að ræða 101 fm neðri hæð sem telur , forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, svefnherbergi, herbergi ( geymsla eða svefnherbergi) og snyrtingu.
Efri hæð er 81,3 fm sem telur gang, þrjú svefnherbergi, opið vinnuherbergi og baðherbergi.
Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi.
Eldhús, með viðar innréttingu og góðri borðastöðu.
Stofa og borðstofa eru samliggjandi í opnu rými með gluggum á tvær hliðar. Inn af borðstofunni er herbergi sem í dag er notað sem geymsla en auðvelt að breyta í svefnherbergi.
Svefnherbergin eru fjögur, þrjú á efri hæðinni með fataskápum og eitt á neðri hæðinni sem nýleg (des 2020) hefur verið einangrað og klætt að innan, lagðar nýjar raf- og vatnslagnir og ný gólfefni.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað að hluta. Þar eru vínil flísar á gólfum og flísar á hluta veggja, upphengt wc,
sturta með innfelldum tækjum, handklæðaofn, hvít innrétting og opnanlegur gluggi.
Snyrting er á neðri hæðinni með flísum á gólfi og þiljum á veggjum, hvítri innréttingu, wc, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og opnanlegur gluggi.
Gangur á efri hæðinni er með parketi á gólf. Við endan á ganginum er timbur stigi milli hæða. Lúga er í loftinu upp á loftið.df
Bakinngangur er með flísum á gólfi.
Geymslan er rúmgóð, með lökkuðu gólfi og opnanlegum gluggum.
Gólfefni: Flísar og parket.
Annað
- Gler í gluggum í stofu, borðstofu og geymslu var endurnýjað árið 2021
- Búið er að endurnýja frárennslislagnir.
- Þak var yfirfarið á geymslunni árið 2020, skipt um það timbur sem þurfti, settur nýr pappi og nýtt járn.
- Búið er að klæða stafna hússins með steníplötum og viðbyggingu(geymslu)
- Timbur gólf er á milli hæða.
- Bílastæði eru með norðurhlið hússins.
Allar nánari upplýsingar veitir Hörður Sverrisson, lgf s 899-5209 og á hordur@fold.is
Fold fasteignasala
Sóltúni 20, 105 Reykjavík.
s 552-1400
www.fold.is
fold@fold.is