ALDA fasteignasala kynnir í einkasölu fallega, bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi við Akurhóla 2, 800 Selfossi.
Skráð stærð eignar er 79,2 fm og skiptist í forstofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús, stofu og sérgeymslu. Útgengi út á skjólgóðan timburpall sem snýr til suðurs. Frábær staðsetning þar sem stutt er í leik- og grunnskóla.
Allar nánari upplýsingar veita:
Aníta Olsen Jóhannesdóttir aðstoðarmaður fasteignasala í síma 6151640 eða anita@aldafasteignasala.is
Jón G. Sandholt löggiltur fasteignasali í síma 777-2288 eða jon@aldafasteignasala.isNánari lýsing eignar:Forstofa er flísalögð með fataskápum í viðarlit. Gengið er inn um sérinngang.
Eldhús, stofa og borðstofa eru saman í opnu og björtu rými. Fallegt harðparket í viðarlit á gólfum. Gott skápapláss í eldhúsinnréttingu og
eyju, ofn í vinnuhæð. Útgengi frá stofu út á skjólgóðan timburpall sem snýr í suður.
Baðherbergi er
flísalagt á gólfi og veggjum að hluta. Innrétting í viðarlit, upphengt salerni og baðkar með sturtuaðstöðu.
Þvottahús er inn af baðherbergi með flísum á gólfi og vaski.
Hjónaherbergi er 10,5 fm með harðparket á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi er 8.4 fm með harðparket á gólfi.
Sér geymsla er 3,1 fm staðsett inn af sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Íbúðin er öll ný máluð.
Húsið Akurhólar 2 er forsteypt einingahús á tveimur hæðum með 11 íbúðum. Íbúðir á 1. hæð hafa sérafnotaflöt af lóð að sunnaverðu 3,0 m. út frá húsi og langs með vesturhliðinni.
Einstaklega falleg eign á eftirsóttum stað á Selfossi. Leik- og grunnskóli í göngufjarlægð og stutt í alla helstu þjónustu.Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Anítu Olsen Jóhannesdóttir aðstoðarmaður fasteignasala í síma 6151640 eða anita@aldafasteignasala.is
Jón G. Sandholt löggiltur fasteignasali í síma 777-2288 eða jon@aldafasteignasala.is -----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALDA fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.