LANDMARK kynnir: Afar sjarmerandi 155,8 fm, 5 herbergja einbýlishús á einni hæð, innst í botnlanga í vinsælu hverfi í Garðabæ. Fallegur garður með garðhúsi, verönd og heitum potti. Geymsluskúr á lóð. Gólfhiti.
*** Eigendur eru opnir fyrir skiptum á 4ra herbergja íbúð í Sjálandinu ***Frábær staðsetning í fjölskylduhverfi þar sem stutt er í leikskóla, skóla, íþróttaaðstöðu í aðra þjónustu. Fallegar gönguleiðir út í Heiðmörkina og nágrenni eru í göngufæri.
*** Nýlegar endurbætur árið 2022: Fyrir nokkrum árum var gólfhiti lagður í húsið og gólfefni endurnýjuð. Einnig voru innihurðar endurnýjaðar. Baðherbergi var sett upp við hjónaherbergi og stærra baðherbergið flísalagt á ný. Skjólveggur austan meginn byggður. Rafmagnstaflan var endurbætt og hleðslustöð fyrir rafbíl komið fyrir við bílskúrinn. Tröppur og pallur framan við hús var endursteypt 2024. ***Forstofa er með parketi á gólfi og góðu skápaplássi.
Eldhúsið er með fallegri viðarinnréttingu og parketi á gólfi. Inn af er
þvottahús með útgengi út á lóð.
Stofan og borðstofan eru samliggjandi í opnu rými með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt út á verönd og lóð sem snúa frá austri til vesturs.
Hjónasvíta hefur verið innréttuð í hluta bílskúrsins með parketi á gólfi og
flísalagt baðherbergi inn af með sturtu.
Fataherbergi er í yfirbyggðu rými milli húss og bílskúrs og er um 6 fm, óskráð. Í hinum hluta bílskúrsins er
tómstundaherbergi / geymslurými.Á
herbergjagangi eru þrjú svefnherbergi með parketi á gólfi. Nýr innbyggður fataskápur er í einu herbergi og laus í öðru sem getur fylgt með.
Bæði baðherbergin er flísalögð með steyptri sturtu með glervegg og handklæðaofni.
Gólfhiti er í stærstum hluta hússins, annars ofnar.
Lóðin er glæsileg, gróin og skjólsæl suðurlóð með stórri timburverönd, heitum potti og útibar/eldhúsi. Á lóðinni eru um
14 fm garðhýsi og um
6 fm geymsluskúr. Einstakur sælureitur fyrir alla fjölskylduna.
Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða ss@landmark.is
----------------------------------------------------------Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat