Borg fasteignasaal kynnir: Til sölu 31,4 m2 stúdíóíbúð í kjallara við Kaplaskólsveg 55 í Reykjavík.
Um er að ræða ósamþykkta stúdíó íbúð við Kaplaskjólsveg 55 í Vesturbæ Reykjavíkur. Eignin er ósamþykkt. Húsið var tekið í gegn að utan árið 2016, Múr yfirfarinn og málað.
Gluggar endurnýjaðir 2025
Lýsing: Komið inní opið rými sem er stofa og eldhús.
Ljós innrétting. Ísskápur nýlegur fylgir með.
Baðherbergi með sturtu. Þvottavél fylgir með.
Svefnherbergi opið að hluta og er ekki með lokaðri hurð. Plastparket á gólfi.
Sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi.
Sameign: Hjóla- og vagnageymsla.
Nánari upplýsingar veitirVictor Levi R. Ferrua, löggiltur fasteignasali, í síma 868 2222 - victor@fastborg.is
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af fasteignamati.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.