Böðvar Sigurbjörnsson og Borg fasteignasala kynna: Miðtún 17, 105 Reykjavík, 5 herbergja 133,7 m2 hæð og ris með bílskúr í tvíbýlishúsi miðsvæðis í Reykjavík. Eignin getur verið laus til afhendingar fljótlega eftir undirritun kaupsamnings. Skipulag: Hæð: Anddyri, gangur, stofa/borðstofa, svefnherbergi, eldhús, baðherbergi.
Ris: snyrting, þrjú svefnherbergi.
Nánar um eignina: Hæð: Forstofa með flísum á gólfi. Samliggjandi stofa og borðstofa með parketi á gólfi. Inn af stofu er svefnherbergi með parketi á gólfi, skápur. Eldhús er rúmgott með flísum á gólfi. Eldhúsinnrétting með skápum ofan og neðan borðplötu, flísar á vegg milli efri og neðri hluta skápa, ofn á vinnuhæð og innrétting til hliðar, helluborð og vifta. Baðherbergi er með flísum á gólfi og vegg að hluta, stór flísalögð sturta, innrétting fyrir neðan handlaug, flísar á vegg við handlaug og stór spegill, handklæðaofn.
Ris: Gengið er upp í ris um teppalagðan stiga, á risi er baðherbergi með handlaug og salerni. Þrjú svefnherbergi eru á hæðinni með parketi á gólfi og skápum undir súð.
Þvottahús fyrir hæðina er í kjallara hússins, gengið er niður í þvottahús um stiga af gangi íbúðar.
Bílskúr: Gengið er inn í skúrinn frá garði, þarfnast viðhalds.
Annað: Íbúðin er vel skipulögð, gólfflötur stærri en fermetratalan segir til um.
Hæð og ris eru byggð úr timbri á steinsteyptum kjallara og eru timburútveggir forskalaðir, bílskúrinn er úr holsteini. Húsið þarfnast viðhalds, m.a. á ytra byrði, þaki og dreni. Árið 2014 var skipt um gólfefni, nýir gluggar á suður- og vesturhlið hæðar og nýir þakgluggar, þak málað. Skipt var um rafmagnstöflu í húsinu árið 2014. Baðherbergi í risi var endurnýjað 2015. Skipt var um hitalagnir í risi 2019. Gróinn og skjólsæll garður með fallegu gullregni, hindberjarunnum og rabbabara. Bílastæði fyrir tvo bíla á lóðinni. Vel staðsett eign við friðsæla götu. Stutt er í alla þjónustu, matvöruverslanir, kaffihús, veitingarstaði og almenningssamgöngur. Einkarekinn skóli og leikskóli er í götunni.
Nánari upplýsingar veitir Böðvar Sigurbjörnsson, lögfræðingur hjá M.L. og lgf., í síma 660-4777 eða bodvar@fastborg.isSjá einnig:fastborg.is/Smelltu hér til að fylgjast með mér á FacebookSmelltu hér til að fylgja mér á InstagramÍ lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um skyldu kaupenda til að skoða fasteignir.
BORG fasteignasala vill því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna áður en gert er kauptilboð og leita til hæfra sérfræðinga til frekari skoðunar.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða fyrir kaupin:
Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8 / 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald kaupsamnings, veðskuldabréfs, hugsanlegt veðleyfi o.fl.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýslugjald vegna fasteignasölu samkvæmt kauptilboði