
Kristján Kristjánsson fasteignasali kynnir til sölu Fasteignamartröðina sem sýnd verður í Samkomuhúsinu á Akureyri. Um er að ræða skemmtilega, áhugaverða og áleitna sýningu í einu elsta og glæsilegasta húsi bæjarins.
Einstök upplifun á eftirsóttum stað í hjarta bæjarins.
Komið er inn í teppalagt anddyri. Gengið er upp brattan og íburðarmikinn stiga upp í rúmgott alrými á annarri hæð. Við hornið er bar og sjoppa með frábæru útsýni yfir Pollinn.
Úr alrýminu opnast vængjahurð inn í grænmálaðan sýningarsalinn. Þar er hver fermeter vel nýttur.
Vandað hefur verið til verka á sviðinu og allur frágangur til fyrirmyndar. Þegar ljósin í salnum slokkna má sökkva sér ofan í rauð flauelssæti.
Fasteignamartröðin er meinfyndinn spegill á raunveruleika ungs fólks í dag þar sem persónusköpun í anda Sex and the City mætir absúrdveröld Kafka.
Allar nánari upplýsingar má nálgast á menningarfelag.is, í síma 450-1000 eða á midasala@mak.is
