FS fasteignir – 571-9992Óseyri 18, 603 AkureyriÁ 1. hæð í suðurhluta hússins er gott 54 m² iðnaðarbil með iðnaðarhurð og möguleika á að bæta við millilofti. Í vestari hluta 1.hæðar er rúmgott 124 m² verkstæðisbil með iðnaðarhurð og gönguhurð, sér salerni og kaffistofu. Í austurhluta 1. hæðar er 63 m² iðnaðarbil með iðnaðarhurð með innbyggðri gönguhurð. Í norðausturhluta 1. hæðar er góð 42 m² geymsla með tvöfaldri gönguhurð.
Á 2. hæð eru kaffistofa, snyrting, skrifstofa og geymslurými, auk vinnustofu með sérinngangi. Í miðrými 2. hæðar er jafnframt stórt milliloft með stórri hurð. Sá hluti er lítið einangraður og ekki upphitaður, en býður upp á mikla möguleika. Samanlögð stærð 2. hæðar er 248 m².
Á 3. hæð er óupphitað geymsluloft. Heildarstærð þess er 173 m², með möguleika á stækkun í allt að 248 m².
Lóðin er að hluta malbikuð og að hluta malarlögð. Heildarstærð lóðar er 1.658,6 m².
Nánari upplýsingar í síma 571-9992 eða fsfasteignir@fsfasteignir.isSkoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FS fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
FS fasteignir ehf. - Glerárgata 36, 3. hæð - 571-9992 - www.fsfasteignir.is
Friðrik Sigþórsson, löggiltur fasteignasali, s: 694-4220, fridrik@fsfasteignir.is
Svala Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, s: 663-5260, svala@fsfasteignir.is
Sigurpáll Gunnarsson, nemi til löggildingar fasteignasala, s: 618-6126, sigurpall@fsfasteignir.is
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá verðmat og ráðgjöf.
Fylgstu með nýjustu eignunum til sölu hjá okkur á facebook og instagram.