Fasteignaleitin
Skráð 25. sept. 2025

Laugarásvegur 1

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
107.6 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
89.900.000 kr.
Fermetraverð
835.502 kr./m2
Fasteignamat
87.600.000 kr.
Brunabótamat
50.450.000 kr.
Mynd af Herdís Sölvína Jónsdóttir
Herdís Sölvína Jónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2019567
Landnúmer
104729
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
4
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Óvitað
Raflagnir
Endurnýjað 2023 en tafla ca. 10 ára
Frárennslislagnir
Endurnýjað f. ca.15 árum
Gluggar / Gler
Gler endurnýjað
Þak
Skipt um þak að hluta
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Vestur og norður svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Á aðalfundi 2025 voru lagðar fram tillögur að viðhaldi og endurbótum sameignar. Samþykkt var að kanna ástand lagna ef að kostnaður er ekki of mikill. Stjórn var veitt heimild til að afla tilboða í margvísleg viðhaldsverkefni, m.a. múrviðgerðir, sem tilgreind eru í aðalfundargerð og leggja fyrir annan fund. Sjá aðalfundargerð 14.05.2025.
Lind fasteignasala og Herdís Sölvína Jónsdóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu glæsilega og nýuppgerða 4ra herbergja endaíbúð á 2.hæð með miklu útsýni yfir Laugardalinn og stórar hornsvalir. Íbúðin var upphaflega 4ra herbergja en tekið var niður herbergi og stofan stækkuð og er því í dag 3ja herbergja. Eignin er sérlega sjarmerandi og björt. Draumastaðsetning þar sem að það er örstutt í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, húsdýra- og fjölskyldugarðinn, heilsurækt, sund, heilsugæslu og skemmtilegar gönguleiðir. 

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, og baðherbergi. Hægt er að bæta við einu svefnherbergi.
Þvottahús og geymsla eru í sameign. 

Eigninni fylgir hlutdeild í sameign, sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu ásamt sér geymslu í kjallara. 
Stærð eignar er 107,6 fm. skv. FMR. en þar af er geymsla 7,7 fm. en sameign í kjallara og m.a. þvottahús eru ekki inni í fermetratölu.
** ATH. Inn í fasteignamati er bílskúr sem á eftir að fjarlægja af eigninni og mun nýtt fasteignamat líklega verða um 78.150.000. **

Allar nánari upplýsingar veitir Herdís Sölvína Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 862 0880 eða herdis@fastlind.is
Smelltu hér og fáðu söluyfirlit strax.


Nánari lýsing: 
Forstofa með parketi á gólfi og myndavéladyrasíma.
Eldhús er með fallegri ljósgrárri innréttingu, stórri eyju með miklu vinnuplássi, dökkri borðplötu og Miele ofni í vinnuhæð. Útgengi er út á svalir með fallegum tvöföldum frönskum hurðum.
Stofan er parketlögð, rúmgóð  og björt með stórum gluggum. Gengið er út á stórar hornsvalir út frá stofu sem snúa í vestur. Hægt er að bæta við þriðja herberginu.
Svefnherbergi er með parketi á gólfi og hvítum fataskápum.
Svefnherbergi II er með parketi á gólfi. 
Baðherbergið er með parketi á gólfi, fallegri handlaug með Vola blöndunartækjum og speglaskápum, baðkari frá Starck, upphengdu salerni, opnanlegum glugga og flísum á veggjum.
Geymsla er með máluðu gólfi og er 7,7 fm.

Eignin hefur verið mikið endurnýjuð:
2025
Hús og gluggar málaðir að utan.
2024 Þak tekið í gegn fyrir ofan stigaganginn en rest af þaki var tekið í gegn fyrir ca. 17 árum.
2023 Skipt um parket, eldhúsinnréttingu og tæki, allt inni á baðherbergi, hurðar, rafmagn og loft tekið niður og sett ljós ásamt myndavéladyrasíma.
2023 Nýtt gler í vesturgluggum ásamt því að sett var ný tvöföld frönsk hurð norðanmegin en rest af gleri var skipt um ca. 2013.
2023 Nýjir ofnar.
2021 Þakkantur lagaður og málaður.
2010 Skólp tekið að hluta.

Sameignin er snyrtileg og einstaklega falleg með þvottahúsi í kjallara þar sem hver og einn er með sína þvottavél og sér geymslu.
 

Góð eign á vinsælum stað í Laugardalnum.

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 10 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,
Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.

** Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
** Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
** Frítt söluverðmat á þinni eign hér eða hjá Herdís Sölvína Jónsdóttir, sími 862 0880herdis@fastlind.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (23)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mosagata 15
Bílastæði
Opið hús:17. mars kl 12:15-12:45
Skoða eignina Mosagata 15
Mosagata 15
210 Garðabær
93.5 m2
Fjölbýlishús
32
887 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Mávahlíð 41
Opið hús:17. mars kl 18:00-18:30
Skoða eignina Mávahlíð 41
Mávahlíð 41
105 Reykjavík
95.5 m2
Fjölbýlishús
312
836 þ.kr./m2
79.800.000 kr.
Skoða eignina Drekavellir 24B
DJI_0340.JPG
Skoða eignina Drekavellir 24B
Drekavellir 24B
221 Hafnarfjörður
92.5 m2
Fjölbýlishús
312
756 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Geislaskarð 2
3D Sýn
Skoða eignina Geislaskarð 2
Geislaskarð 2
221 Hafnarfjörður
108 m2
Fjölbýlishús
413
727 þ.kr./m2
78.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin