Fasteignaleitin
Skráð 19. mars 2025
Deila eign
Deila

Áshamar 48 - þakíbúð 502

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
98.1 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
99.600.000 kr.
Fermetraverð
1.015.291 kr./m2
Fasteignamat
69.900.000 kr.
Brunabótamat
65.400.000 kr.
Mynd af Margrét Rós Einarsdóttir
Margrét Rós Einarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2024
Þvottahús
Lyfta
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2515282
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
5
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Nýtt (2024)
Raflagnir
Nýtt (2024)
Frárennslislagnir
Nýtt (2024)
Gluggar / Gler
Nýtt (2024)
Þak
Nýtt (2024)
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já - suðvestursvalir (20,8 m2)
Lóð
1,24
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
8 - Í notkun
** STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU ** AUKIN LOFTHÆÐ ** ÞAKSVALIR 20.8 m2 ** SVANSVOTTUN ** GÆLUDÝR LEYFÐ **
Fasteignasalan TORG kynnir í sölu glæsilega 3ja herbergja þakíbúð á fimmtu og efstu hæð með stæði í bílageymslu. Nýtt Svansvottað lyftufjölbýli á frábærum stað í Hamraneshverfi í Hafnarfirði. Vönduð og vel skipulögð eign, aukin lofthæð, fallegt útsýni og stórar svalir til suðvesturs. Laus strax og afhendist fullbúin með gólfefnum, öllum tækjum og innbúi sem er til staðar. Íbúðin skiptist í forstofu, hol, eldhús ásamt stofu og borðstofu í opnu rými, tvö svefnherbergi, gestasalerni og baðherbergi með þvottaaðstöðu ásamt sérgeymslu og hjólageymslu í sameign. Leyfi er fyrir dýrahaldi. Draumaeign þeirra sem vilja leika og lifa í nánd við náttúruna. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós lgf. í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is

*** SMELLTU HÉR TIL AÐ SÆKJA SÖLUYFIRLIT ***

Frábær staðsetning í rólegu og fjölskylduvænu hverfi í mikilli nálægð við óspillta náttúru og falleg útivistarsvæði. Stutt er í helstu þjónustu og verslanir. Leik- og grunnskólar eru í göngufæri auk þess sem íþróttamiðstöð Hauka og Ásvallalaug er í næsta nágrenni. Svæðið er umlukið fallegri náttúru með fjölbreyttum göngu- og hjólaleiðum, en stutt er í vinsæl útivistarsvæði eins og Hvaleyrarvatn, Ásfjall og Heiðmörk til að njóta útiverunnar.

Um er að ræða Íbúð 502Áshamar 48. Birt stærð skv. fasteignaskrá HMS er 98,1 m2, þarf af er 7,4 m2 geymsla í kjallara.

Hægt er að nálgast skilalýsingu og fá nánari upplýsingar hjá Margréti Rós lgf. í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is

Skipulag og lýsing eignarhluta:
Forstofa með harðparket á gólfi.
Hol með fataskápum er inn af forstofu og tengir saman aðrar vistverur íbúðar.
Alrými þar sem eldhús, stofa og borðstofa eru samliggjandi í opnu og björtu rými, með harðparket og stórum gluggum.
Eldhús með fallegri innréttingu frá Parka, vönduðum tækjum frá AEG, bakaraofn í vinnuhæð, innfeldum ísskáp og uppþvottavél. Gott vinnupláss á eyju með helluborð til eldunar, fallegt harðparket á gólfi.
Stofa/borðstofa er rúmgóð og björt með harðparket, útgengt er út á stórar (20,8 m2) suðvestur svalir frá stofu.
Baðherbergi er flísalagt með fallegri innréttingu við vask og speglaskáp á vegg, inngengri sturtu, upphengdu salerni og handklæðaofn. Þvottaaðstaða á baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara sem fylgja eigninni.
Hjónaherbergi er rúmgott með glugga á tvo vegu og góðum fataskáp, fallegt harðparket á gólfi.
Svefnherbergi rúmgott og bjart með harðparketi á gólfi.
Gestasalerni er flísalagt með fallegri innréttingu við vask, speglaskáp á vegg og upphengdu salerni.
Sérgeymsla íbúðar (7,4 m2) er inn af sameignargangi í kjallara hússins.
Bílastæði í bílageymslu fylgir eigninni.

Húsið og lóðin
Áshamar 48 er fimm hæða steinsteypt og álklætt fjölbýlishús auk kjallara. Í stigaganginum eru 17 íbúðir, og í kjallara þess eru sérgeymslur íbúða ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Húsið er hluti af klasabyggingu við Áshamar 42-48, þar sem skemmtilegur garður tengir húsin saman.
Aðkoman að húsinu er góð. Stéttar næst húsi eru hellulagðar og snjóbræðslulögn í gangstígum framan við húsin samkvæmt teikningu. Sameiginleg bílastæði eru á bílaplani sem tilheyra húsinu og möguleiki er á leigu á stæði í bílageymslu.

Svansvottun - Byggingarnar að Áshamri 42-48 eru Svansvottaðar og uppfylla ströngustu umhverfiskröfur Norðurlandanna. Hönnun miðar að lágmarks orkunotkun, betri loftræstingu og hámarksnýtingu dagsbirtu. Allt byggingarefni og verkferlar lúta ströngu eftirliti. Nánari upplýsingar um Svanvottunarferli hér. Verkland er byggingaraðili hússins og er reynslumikið og traust byggingarfyrirtæki sem hefur unnið við húsbyggingar í áratugi. 

Staðsetning og nærumhverfi
Hamraneshverfi er vel staðsett og fjölskylduvænt hverfi í mikilli uppbyggingu með skóla, leiksskóla og falleg útivistarsvæði í næsta nágrenni. Tveir barnaskólar og þrír leikskólar eru til staðar í hverfinu ásamt góðri aðstöðu til íþrótta- og tómstundaiðkunar. Í framtíðinni er gert ráð fyrir enn frekari uppbyggingu með grunnskóla, fleiri leikskólum og heilsugæslu í hverfinu. Hamraneshverfi er kjörinn staður fyrir þá sem vilja njóta samspils náttúru og borgarlífs í fallegu umhverfi þar sem stutt er í góða þjónustu og aðstöðu fyrir alla fjölskylduna.

Einstakt tækifæri til að eignast vandaða íbúð á frábærum stað í Hafnarfirði!

Nánari upplýsingar veita:
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 856-5858 / margret@fstorg.is
Hafdís Rafnsdóttir - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 820-2222 / hafdis@fstorg.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. fasteignasalan TORG bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á. 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Áshamar 48
Skoða eignina Áshamar 48
Áshamar 48
221 Hafnarfjörður
98.1 m2
Fjölbýlishús
312
986 þ.kr./m2
96.700.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 15 íb. 503
Bílastæði
Hringhamar 15 íb. 503
221 Hafnarfjörður
97.8 m2
Fjölbýlishús
312
970 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Drangsskarð 11
Skoða eignina Drangsskarð 11
Drangsskarð 11
221 Hafnarfjörður
111.3 m2
Fjölbýlishús
312
880 þ.kr./m2
97.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 13-15 íb. 503
Bílastæði
Opið hús:22. mars kl 13:00-13:30
Hringhamar 13-15 íb. 503
221 Hafnarfjörður
97.8 m2
Fjölbýlishús
322
970 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin