Fasteignaleitin
Skráð 4. sept. 2026

Heiðarbakki 7

EinbýlishúsSuðurnes/Reykjanesbær-230
207.2 m2
6 Herb.
5 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
116.900.000 kr.
Fermetraverð
564.189 kr./m2
Fasteignamat
109.250.000 kr.
Brunabótamat
110.000.000 kr.
Mynd af Hákon Ólafur Hákonarson
Hákon Ólafur Hákonarson
www.prodomo.isEignalisti
Byggt 1979
Garður
Pallur
Heitur pottur
Bílskúr
Á einni hæð
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2088422
Landnúmer
127271
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
sagt í lagi, neysluvatn endurnýjað
Raflagnir
sagt í lagi, rafmagnstafla endurnýjuð 2022
Frárennslislagnir
sagt í lagi
Gluggar / Gler
sagt í lagi ekki verið endurnýjað og móða sjáanleg í einhverjum glerum
Þak
endurnýað 2021
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd með skjólveggjum og heitum pott
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Tveir inngangar
PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu Heiðarbakka 7, 230 Reykjanesbæ
Vel skipulagt 207,2 fm einbýlishús á einni hæð og þar af 49,5 fm bílskúr á frábærum og rólegum stað innarlega í botnlangagötu í Heiðarskólahverfi. Eignin skiptist í forstofu, rúmgott alrými með stofu og borðstofu, eldhús, 5 svefnherbergi, baðherbergi, gestasalerni, þvottahús og bílskúr. Snyrtilegur garður með stórri verönd með skjólveggjum og heitum pott.


Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Björt og rúmgóð forstofa með góðum fataskápum. Flísar á gólfi.
Stofa og borðstofa: Mjög bjart og rúmgott alrými með stórum gluggum. 
Eldhús: Snyrtileg innrétting með góðu skápa- og vinnuplássi. Gert ráð fyrir stórum ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.
Hjónaherbergi: Rúmgott með miklu skápaplássi. Parket á gólfi.
Barnaherbergi: Fjögur góð herbergi öll með parketi á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. góð innrétting með tveimur vöskum, sturtuklefi, baðkar, upphengt salerni og opnanlegur gluggi.
Gestasalerni: Flísalagt gólf, vaskur í innréttingu og salerni.
Þvottahús: Rúmgott þvottahús með stórri innréttingu og miklu skápaplássi, aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og gott vinnupláss. Útgengi úr þvottahúsi út á bílaplan.
Bílskúr: 49,5 fermetra bílskúr með sjálfvirkum opnara á annari bílskúrshurðinni, tvær gönguhurðar ein að framan og ein frá baklóð, hita, rafmagni og rennandi vatni. Geymsla innst í bílskúr.
Garður og lóð: Lóðin er fullfrágengin, gróin og vel hirt. Stór sólpallur með skjólveggjum og heitum potti, hluti af verönd undir þaki. Bílaplan er steypt með snjóbræðslu.
Járn á þaki var nýlega endurnýjað ásamt rennum en þakkant á eftir að klára.

Flott einbýli á geggjuðum stað sem vert er að skoða.

Allar nánari upplýsingar veita:

Hákon Ó. Hákonarson 
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 899-1298 
hakon@prodomo.is

Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 860-6886 
lilja@prodomo.is 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
13/12/201332.050.000 kr.37.750.000 kr.207.2 m2182.191 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1979
49.5 m2
Fasteignanúmer
2088422
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
18.500.000 kr.

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Heiðarból 63
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Heiðarból 63
Heiðarból 63
230 Reykjanesbær
218.5 m2
Einbýlishús
514
595 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Suðurmýri 58
Bílskúr
Heitur pottur
Skoða eignina Suðurmýri 58
Suðurmýri 58
170 Seltjarnarnes
222.2 m2
Einbýlishús
624
967 þ.kr./m2
214.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnagata 10
Eldhús
Skoða eignina Hafnagata 10
Hafnagata 10
233 Reykjanesbær
111 m2
Einbýlishús
514
499 þ.kr./m2
55.400.000 kr.
Skoða eignina Heiðarbraut 5d
Heitur pottur
Skoða eignina Heiðarbraut 5d
Heiðarbraut 5d
230 Reykjanesbær
175.2 m2
Raðhús
715
502 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin